Ágúst
Skaftafell
Skaftafell
Skaftafell

08.08.2006 Ágúst

Fannst hrakinn og þrekaður í morgun

Maður sem leitað var að í Skaftafelli fannst hrakinn og þrekaður rétt fyrir klukkan átta í morgun. Björgunarsveitarmenn á fjórhjólum fundu manninn um 5 km fyrir sunnan þjóðveg eitt, milli Skaftafellsár og Skeiðarár eftir að slóð hans fannst á söndunum. Ekkert hafði sést til mannsins frá því klukkan hálf tvö aðfararnótt mánudags. Viðbúnaður var mikill, um 170 björgunarsveitarmenn úr 25 sveitum, víða af landinu leituðu mannsins, bæði fótgangandi, sem og á fjór- og sexhjólum. Auk þess voru svæðisleitar- og sporhundar notaðir.

Stjórnendur leitarinnar vilja koma á framfæri þakklæti til Ragnars Franks Kristjánssonar, þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli fyrir hans aðstoð sem og til hótelhaldara á Hótel Skaftafelli í Freysnesi sem rýmdu herbergi í hótelinu svo leitarmenn gætu hvílst.

www.landsbjorg.is




Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica