Ágúst
Kirkjan í Húsavík
Kirkjan í Húsavík
Kirkjan í Húsavík

08.08.2006 Ágúst

Á slóðir álfa og trölla

Ferðafélag A-skaft fór í árlega jeppa og gönguferð félagsins 21.-23. júlí s.k. Farið var á Borgafjörð-eystri og Loðmundafjörð. Fólk mætti á föstudagskvöldinu og kom sér fyrir. Þeir sem komu snemma fóru í kvöldgöngu um svæðið og höfðu gaman af, þó þoka væri. Á laugardeginum var farið í Loðmundarfjörð gangandi eða akandi eftir vild. Veðrið var mjög milt en þoka. Þeir sem ætluðu að labba, reimuðu gönguskóna og öxluðu bakpoka og bjuggust við langri vist á fjöllum vegna þoku. Gengið var um Kækjuskörð (Kækja þýðir tröllskessa) til Loðmundarfjarðar undir leiðsögn Skúla Sveinssonar frá Borgarfirði-eystri, aðrir fóru akandi eftir jeppaslóð að Stakkahlíð. Ekki höfðum við gengið lengi er þokunni létti og það brast á með sólskini og hita. Á leiðinni upp Kækjudal skoðuðum við álfastein og álfakirkju. Af Kækjuskörðum blasti við heilu fjallgarðarnir með tröllslegum hnausum og mikilli litadýrð, einnig blasti Loðmundafjörður við grösugur og búsældarlegur. Héldum við áfram að Stakkahlíð þar sem jeppahópurinn beið okkar. Þá var ekið að Klyppstað og kirkjan skoðuð. (byggð 1895).

Alls voru 10 bæir í byggð í Loðmundafirði og fór sá síðasti í eyði 1973. Nú var haldið út Loðmund í átt til Húsavíkur, á leiðinni var m.a. skoðuð gömul virkjun, íbúðarhús með steyptu þaki, flísalögðum stiga og steyptu eldhúsborði. Sögur eru til um, að dansað hafi verið á þaki hússins á góðum stundum. Einnig skoðuðum við hafnarmannvirkri fjarðarins. Loks var ekið til Húsavíkur, kirkjan þar skoðuð og danshús staðarhaldara. Afkomendur ábúanda í Húsavík hittast þarna á sumrin og slá upp balli. Húsið var lítið og sætt en fara þurfti með gát inn svo þú stigir ekki niður úr gólfinu í anddyrinu. Loks var haldið til Borgafjarðar grillað og haft gaman. Um kvöldið var farið í gönguferð um þorpið, kirkjan skoðuð, lítill torfbær, tónleikahöll Emilíana Torrine, listaverk eftir Kjarval og margt fl. Á sunnudaginn var ekið til Breiðuvíkur og hún skoðuð. Alls fóru 29 manns í þessa ferð á öllum aldri, sá elsti komin á áttræðisaldur og sá yngsti 2 mánaða. Leiðsögumaður var Skúli Sveinsson og á hann þakkir skilið fyrir liðlegheit og góða leiðsögn .Að lokum vill ferðafélagið mynna á ferð félagsins 11. ágúst Múladalur-Hofsdalur. Skrá þarf í þessa ferð þar sem aðeins er jeppaslóð inn dalina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica