Það er bjart yfir búskap bænda
Heyskap er víðast hvar lokið í Hornafirði a.m.k. fyrri slætti segir Grétar Þorkelsson starfsmaður Búnaðarsambandsins. Þurrkar hafa verið stopulir og fáir samfelldir sólardagar og væri rúllubakkaverkun ekki til hefði heyskapur verið erfiður í sumar en aðeins tvo þurrkdaga þarf til að hægt sé að hirða heyið í rúllur. Þeir bændur sem byrjuðu slátt snemma hafa náð miklum og góðum heyjum því grasspretta er mikil og kannski fullmikil fyrir þá sem ekki byrjuðu slátt fyrr en í júlí. Mjög vel lítur út með kornrækt hér og er hún alltaf að aukast t.d. eru komnir þrír nýir kornræktendur í Lóni en stærstur í kornræktinni er Sæmundur bóndi í Árbæ með 20 hektara. Sæmundur nýtir kornið vel þar sem hann er kominn með svokallaðan heilfóðurbúnað sem er mixer sem hey, fóðurbætir og korn er unnið saman í einskonar kúamúsli og þannig nýtist fóðrið til fulls.
Það er bjart yfir búskap bænda núna segir Grétar og ég held að það sé gaman að vera bóndi í dag. Fjárbú stækka og þeim fjölgar, mikil eftirspurn er eftir kindakjöti og gott verð fyrir kjötið og sama er að segja um mjólkina, nú framleiða bændur eins og mögulegt er af mjólk langt umfram það greiðslumark sem þeir hafa og allt selst því mjólk vantar allsstaðar.
Almenn ræktun hefur mikið vaxið hér á suðausturhorninu og eins hafa margir bændur farið í að endurrækta tún sín og meira er um ræktun fóðurkáls fyrir kýr og kindur.





Skrifa athugasemd