Ágúst
Mastrið
Mastrið
Mastrið

02.08.2006 Ágúst

Síðasti þáttur Mastursins að sinni

Jæja gott fólk þá er komið að síðasta þætti Mastursins þetta sumarið og er þetta búið að vera alveg ógurlega gaman. Þátturinn í kvöld verður með æðislegu sniði eins og vanalega, verður meðal annars sett nýtt og glæsilegt Evrópumet í pylsuáti og Sævar verður með allt niðrum sig í markinu eins og honum er einum lagið. Ný hljómsveiti á Hornafirði? já það er rétt, við kíktum á æfingu hjá gæðingunum þar sem konungur Hornafjarðar fer mikinn og er það að sjálfsögðu hann Stjáni okkar Hauksson. Verður einnig mikil hamingja og snyrtimennskan höfð í fyrirrúmi.

Við mastursmenn viljum þakka kærlega fyrir okkur og vonum við að sem flesti hafi haft gaman þættinum. Takk fyrir okkur.

Þegar ég lærði að elska, lærði ég að lifa.

Kveðja Gunnar Auðunn forstöðumaður Mastursins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica