Ríki Vatnajökuls - Júlí
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Fjölbreytt og hressandi Mastur í kvöld
      <description>Þátturinn í kvöld verður með besta móti. Allt að gerast hjá strákunum og fallhæðin af Mastrinu orðin gríðarleg. Hljóð- og tökumaðurinn stendur sig með miklum ágætum í kvöld. Það sem uppá verður boðið í þessum þætti er mjög fjölbreytt og hressandi. Gísli Reynis fór með vélina og hljóðneman og hitti fyrir nokkra krakka úr vinnuskólanum og spjallaði létt við þá á svokölluðu rústadiskó-i. Pylsu-át, vítaspyrnukeppni og almennt rugl verður ráðandi í þættinum að ógleymdum krökkunum, en Steinar K spjallar við yngstu kynslóðina um daginn og veginn.</description>
      <alt>Mastrið</alt>
Krossfestur á Fiskhólnum
      <description>Vegfarendur um Hafnarbrautina urðu þess varir í morgun að búið var að setja upp kross á Fiskhólnum við Gamla vatnstankinn og á hann var búið að krossfesta mann. Þeir sem stóðu að krossfestingunni voru félagar Karls Guðna Ólafssonar (sonur Óla Björns) en hann er að fara að gifta sig á laugardag og þótti þeim því nauðsynlegt að steggja hann með eftirminnilegum hætti. Brúðurin er Nína Sibyl Birgisdóttir (í Bláa Blóminu). Krossfestingin var númer tvö á listanum en áður var búið að fara með hann á paintball völlinn þar sem hann fékk 5 skot en félagarnir 5000 og má geta sér til hver varð fyrir skoti og hversu oft.</description>
Kynnisferð í ísklifri á Svínafellsjökli í Öræfum
      <description>Fyrir nokkru síðan buðu Íslenskir fjallaleiðsögumenn í Skaftafelli starfsfólki hjá ferðaþjónustuaðilum í kynnisferð í ísklifri á Svínafellsjökli í Öræfum. Við fórum saman 5 frænkur sem meira og minna vinnum á tjaldstæðinu á Höfn. Við byrjuðum á því að keyra í Skaftafell þar sem að við fengum viðeigandi útbúnað, þ.e. brodda og ísöxi. Síðan var haldið að Svínafellsjökli og gengið upp á jökultungu hans.  Þarna var hægt að skoða mismunandi form á jöklinum og litirnir voru mismunandi frá einni ísblokkinni til annarrar. Auk þess kíktum við ofan í jökulsprungur og svelgi.</description>
Tékka á lífsmarki innan ferðamannaiðnaðarins
      <description>Það er gott að búa á Höfn, því þar eru miðvikudagskvöld betri en önnur kvöld. Hornfirðingar eru góðu vanir á miðvikudagskvöldum og er engin breyting á því núna því Mastrið mætir á Skjávarps-skjáinn kl.20:00 í kvöld eins og bæði lærðir og leiknir ættu að vita. Þátturinn í kvöld er sprengfullur bæði af fréttnæmu og jafnframt ó-fréttnæmu efni, sem þó er athyglisvert. Útsendarar Mastursins tékka á lífsmarkinu sem er innan ferðamannaiðnaðarins hér í bæ og ræða m.a við Huga á tjaldsvæðinu. Hugi uppljóstrar í því viðtali hvaða þjóðir eru leiðinlegastar og erfiðastar að eiga við á tjaldsvæðinu. Þá er skemmst frá því að segja að fréttasnápur Mastursins skoðar fornleifafundinn sem fannst við rætur Hafnarbúðarinnar fyrr í vikunni. Vítaspyrnukeppni Mastursins rúllar áfram og er alls ekki útséð hver ber höfuð og herðar yfir aðrar vítaspyrnukempur hér í sveit, en í kvöld eigast við fótboltamógúlarnir Miralem Haseta eða Mica og Árni Þorvaldsson formaður í fleirtölu.</description>
Hjólhýsi fauk í Hvaldal
      <description>Hjólhýsi eyðilagðist í gærkvöldi í Hvaldal í Lóni. Hjón frá Reykjavík með tvö börn voru á leið suður og lentu í mikilli vindkviðu í miðjum Hvaldal með þeim afleiðingum að hjólhýsið fauk á hliðina og tættist í sundur í veðurofsanum. Fólkið slasaðist ekki en  rúður fuku úr bílnum og er hann  mikið skemmdur. Tjaldkerra fauk út af veginum við Þorgeirsstaði í Lóni í gærkvöldi og að sögn lögreglunnar á Höfn mun kerran vera ónýt. Hvasst var í Lóni í gærdag einkum í gærkvöldi og  gekk á með sandbyljum í Hvaldal og feikna vindrokum. Mun betra veður var við Hvalnes en þar mældist vindhraði um og yfir 20m  á þeim tíma sem hjólhýsið fauk. Tjón á ökurækjum eru algeng í Hvaldal og í Hvalnes og Þvottárskriðum þar sem veðravíti er mikið og grjóthrun í skriðunum. Það er mikið áhyggjuefni ekki síst í ört vaxandi umferð að ekki skuli flýtt fyrir nýju vegastæði milli Lóns og Álftafjarðar og þessi vegarkafli aflagður áður en mannskæð slys verða þar.</description>
Sýning á Þjóðgarðsafurðum í Skaftafellsstofu
      <description>Laugardaginn 15. júlí n.k. verður opnuð sýning í Skaftafellsstofu á þeim hugmyndum sem fram komu í samkeppni um þjóðgarðsafurðir, sem fram fór í vor. Sýningin er árangur hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls sem hleypt var af stokkum í janúar síðastliðnum. Hugmyndasamkeppnin var öllum opin, en háð skilyrðum um að afurðin tengdist svæðinu umhverfis Vatnajökul, væri gæðaframleiðsla og markaðsvæn. Afurðin nær bæði til vöru og þjónustu. Alls 23 hugmyndir bárust í keppnina, hver annarri áhugaverðri. Fjöldi þátttakenda og gæði hugmyndanna sýnir óneitanlega þá sköpunargleði sem býr með þjóðinni. Fyrstu verðlaun hlaut Bjarney Ingólfsdóttir fyrir Jökulskallann, sem er gæruskinnshúfa. Önnur verðlaun hlaut Jóna Björg Jónasdóttir fyrir Náttúran úr ull, þ.e.silkihúfa, griffill og trefill. Þriðju verðlaunin hlaut Hornfirska Álafélagið, Fruman á Höfn,  fyrir verkefni sem ber heitið Matur og menning, áll í ríki Vatnajökuls.</description>
Hafa fengið  um 60 gráðu heitt vatn í landi Hoffells
      <description>Fyrir 14 árum var byrjað að bora eftir heitu vatni í landi Hoffells í Nesjum og núna eru menn fullir bjartsýni á að þessi leit beri góðan árangur. Ég hef alltaf haft mikla trú á að heitt vatn finndist hér hjá okkur sagði Þrúðmar Sigurðsson bóndi í Miðfelli, og ég veit að það er nóg af því, það er bara að hitta á nægjanlegt vatnsmagn á réttu dýpi. Búið er að bora niður í 504 metra dýpi  þar sem fengist hefur um 60 gráðu heitt vatn  sem gefur um 3 sek.lítra af  54° heitu vatni. Núna rennur upp úr þrem holum hérna og eru hitastigin 30 gráður, 28 gráður  og vænlegasta holan með 54 gráðu heitt vatn. Reiknað er með að halda áfram borun í haust og bora niður á 8-900 m. dýpi.</description>
      <alt>Hoffell</alt>
Danir fjölmennir í Þjóðgarðinum Skaftafelli
      <description>Vatnavextir hafa eyðilagt tvær göngubrýr yfir Morsá í Skaftafellsþjóðgarði og því ekki hægt að ganga hringleiðina í þjóðgarðinum nema vaða Morsá og það er ekki fyrir aðra en vel knáa göngumenn segir Hafdís Roysdóttir. Brúin inn við Morsárdal nýtist ekki þar sem Morsá hefur flutt sig í nýjan farveg og rennur utan við brúna og grafið frá henni. Brúin sem er inn við Morsárjökul er alveg ónýt og virðist sem jakahlaup hafi komið í lónið þar í vetur og  brotið brúna niður. Brúin við Hrafnagil, sem við köllum Rússarörið, hefur staðið alla vatnavexti vel af sér og er eina greiðfæra leiðin inn í Morsárdal um hana. Hafdís segir að búið sé að merkja þessar breytingar inná kort og þau reyni að láta alla sem þarna fara vita um þessa farartálma.</description>
Á vappinu um allt sveitarfélagið
      <description>Á Hornafirði eru engin umferðarljós eða stöðumælar og ekki höfum við stöðumælaverði, en á Hornafirði er sjónvarps-og afþreyingarþátturinn Mastrið. Í þættinum þetta kvöldið verða strákarnir á vappinu um allt sveitarfélagið og bregða undir sig betri fætinum og fara alla leið í Nesjahverfið og kíkja á leik með utandeildarliðinu Dýnamó Höfn og taka þar nokkra leikmenn tali. Sindri Ragg spjallar létt við krakkagríslingana og spyr þá m.a út í nýafstaðna heimsmeistarakeppni í knattspyrnu. Vítaspyrnukeppni Mastursins er alltaf á sínum stað og fáum við m.a annars að sjá Jón bakara í kvöld á vítapunktinum. Þá verður mjög skemmtilegt söngatriði í þættinum, en sigurvegarar í söngvakeppninni á Humarhátíð heimsóttu Forseta Mastursins GunnaAu, um daginn og tóku lagið fyrir hann.</description>
      <alt>Mastrið</alt>
Fleiri útlendingar á bílaleigubílum en áður
      <description>Aðsókn að Flosalaug  og gistingu hjá Ólafi í Svínafelli hefur verið góð það sem af er sumri. Miðað við veður hefur þetta verið ágætt segir Ólafur, það var ansi blautt í júní  og það sem af er júlí og  vantar meiri hlýindi. Fjöldi ferðamanna er svipaður og á þessum tíma í fyrra en það sem er öðruvísi er að hópum hefur fækkað  en þeim sem ferðast á eigin vegum hefur fjölgað mikið. Það er mikið meira um að útlendingar ferðist um landið á bílaleigubílum og margir koma með sína bíla með ferjunni til Seyðisfjarðar.  Færri íslendingar hafa verið hér á ferðinni miðað við sama tíma í fyrra en það er nú svo um íslenska ferðamenn, þeir leita uppi besta veðrið og í sumar hefur það verið á norður- og austurlandi. Nú er orðið svo ,,stutt´´ á milli staða eftir að vegakerfið batnaði og því ekkert mál að skreppa milli landshluta þangað sem best viðrar.</description>
Nordjobbarar á Brunnhól
300 kg. af humri fóru á grillið hjá Bestfisk
      <description>Grillaður humar er eitt af því sem tilheyrir humarhátíðinni á Hornafirði og humarilminn leggur yfir hátíðarsvæðið. Eigendur Bestfisks voru með gám á bryggjunni þar sem þeir grilluðu bæði humar og ýmiskonar fiskgóðgæti á pinnum. Sívar Árni var að vonum harðánægður með allt það lof sem þeir fengu og  áætlar að um 300 kg af humri hafi farið á grillið. Fólk kom líka til að kaupa humarbakka til að fara með heim og  grilla. Þessar góðu viðtökur og hrós sem Bestfisk-fólk fékk á humarhátíðinni fyrir það sem þeir voru með á boðstólum verður þeim góð hvatning fyrir enn meira úrval  á næstu humarhátíð að ári.</description>
5 þáttur Mastursins sýndur í gærkvöldi
      <description>Í gær var miðvikudagur og sá miðvikudagur var ekki svo frábrugðinn öðrum miðvikudögum í sumar þar sem kempurnar í Mastrinu voru með glóðvolgan þátt á Skjávarpi í gærkvöldi. Þeir félagar voru þó ekki einir í þættinum því þeir fengu heimsókn frá 2 ungum, sterkum og fjallmyndarlegum drengjum, þeim Ólafi Alberti Sævarssyni og Ásgrími Arasyni. Ásamt því að stjórna þættinum sýndu þeir piltar stuttmynd sem þeir hafa nýlokið við að gera, CSI:Hornafjöðrur. Þátturinn var að mestu leyti tileinkaður nýafstaðinni Humarhátíð, en Mastrið var á svæðinu með vélina og tók púlsinn á því sem var að gerast um helgina, þ.á m. hið geysivinsæla kassabílarall Landsbankans.
|nl|Vítaspyrnukeppni Mastursins var á sínum stað í þættinum, en þar voru þeir mættir Stjáni Hauks eða Stinni einsog flestir Hornfirðingar þekkja hann best um allan heim og Gunnar Auðunn Masturströll, og ekki má gleyma Sævari ‘Emm’ í gulu skikkjunni sem stóð á milli stanganna í þessari annars mögnuðu keppni.</description>
      <alt>Mastrið</alt>
Hornfirðingar í Ung í Norden
      <description>Dagana 26. júní til 3. júlí tóku átján ungir listamenn á aldrinum 14-16 ára frá sjö bæjarfélögum á Íslandi þátt í menningarmótinu Ung i Norden og hittu þar rúmlega 200 aðra norræna unglinga. Mótið var haldið í Þórshöfn í Færeyjum. Ung i Norden var nú haldið í fimmta sinn en mótið er haldið annað hvert ár á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Löndin sem tóku þátt eru frá Grænlandi í vestri til Finnlands í austri og frá Danmörku í suðri til Samalands í norðri og allt þar á milli. Íslensku þátttakendurnir komu frá Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjum, Reykjanesbæ, Grindavík, Hafnarfirði, Kópavogi og Ísafirði.Hornfirsku þátttakendurnir voru Jóhann Kristófer Antonsson  og Sólveig Morávek Jóhannsdóttir. Jóhann tók þátt í ljósmyndasmiðju og Sólveig var í leiklistarsmiðju. Bæði eru þau nemendur í Tónlistarskólanum á Höfn.</description>
      <alt>Ung i Norden</alt>
Almannaskarð góð gönguleið
      <description>Eftir að bílaumferð lagðist að mestu niður um veginn í Almannaskarði hefur þessi leið verið vinsæl gönguleið sem reynir vel á þol og þrek. Þegar kemur upp á brún skarðsins er tilvalið að  halda áfram niður Skarðsdalinn að Almannaskarðsgöngunum að norðan og ganga svo sömu leið til baka  því umferð gangandi fólks um göngin er bönnuð. Algengt er að gangan upp á brún Almannaskarðs, sem er í 170m. hæð, taki  frá ca. 12-20 mínútur. Matthildur Ásmundardóttir sjúkraþjálfari sem kennir og þjálfar fólk í stafgöngu notaði veðurblíðuna í gær ásamt konum sem eru á námskeiði hjá henni til að fara svona smá aukaferð, eins og hún orðaði það, upp skarðið og fóru þær létt með það.</description>
120 ára afmælishátíð Landsbankans og kassabílarallí
      <description>Fjölda fólks dreif að Landsbankanum á Höfn strax eftir hádegi á laugardaginn til að taka þátt í  120 ára afmælishátíð bankans og kassabílarallí sem bankinn stendur fyrir á hverri humarhátíð. Til þátttöku í rallíinu voru skráð 13 ökutæki, fjölbreytt að venju, frumleg og skemmtileg. Besta tíma í ökukeppninni og 1. sætið áttu þeir  Þorgils Snorrason og Björn Rúnarsson á 16,99 sek. Í öðru sæti voru Jón Bjarni Sindrason og Gabríel Björgvinsson á 17,06 sek og þriðju voru Kristófer Ögmundsson og Arnar Freyr Valgeirsson á 17,65 sek. Allir hlutu kapparnir bikara og verðlaunapeninga  fyrir frammistöðuna. Einnig fengu allir keppendur verðlaunapening fyrir þátttökuna. 
|nl|</description>
Hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls
      <description>Þriðjudaginn 4. júlí kl. 16:00 verður opnuð að Geirlandi í Skaftárhreppi sýning á afurðum þjóðgarðsins. Sýningin er árangur hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls sem hleypt var af stokkum í janúar síðastliðnum. Hugmyndasamkeppnin var öllum opin, en háð skilyrðum um að afurðin tengdist svæðinu umhverfis Vatnajökul, væri gæðaframleiðsla og markaðsvæn. Afurðin nær bæði til vöru og þjónustu. Alls 23 hugmyndir bárust í keppnina, hver annarri áhugaverðri. Fjöldi þátttakenda og gæði hugmyndanna sýnir óneitanlega þá sköpunargleði sem býr með þjóðinni. Sýningin verður opin á Geirlandi til og með 14. júlí, en þá verður hún flutt í Skaftafellsstofu. Henni mun svo ljúka í haust á Höfn í Hornafirði. Verðlaunaafhending fyrir þrjár bestu afurðirnar að mati dómnefndar fer fram samhliða opnun sýningarinnar á Geirlandi. Til mikils er að vinna en fyrstu verðlaun nema € 2500.</description>