Júlí
Steggjakrossfesting
Steggjakrossfesting
Steggjakrossfesting
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

19.07.2006 Júlí

Krossfestur á Fiskhólnum

Vegfarendur um Hafnarbrautina urðu þess varir í morgun að búið var að setja upp kross á Fiskhólnum við Gamla vatnstankinn og á hann var búið að krossfesta mann. Þeir sem stóðu að krossfestingunni voru félagar Karls Guðna Ólafssonar (sonur Óla Björns) en hann er að fara að gifta sig á laugardag og þótti þeim því nauðsynlegt að steggja hann með eftirminnilegum hætti. Brúðurin er Nína Sibyl Birgisdóttir (í Bláa Blóminu). Krossfestingin var númer tvö á listanum en áður var búið að fara með hann á paintball völlinn þar sem hann fékk 5 skot en félagarnir 5000 og má geta sér til hver varð fyrir skoti og hversu oft.

Á meðan að væntanlegur brúðgumi hékk á krossinum með útsýni yfir bæinn grilluðu félagarnir við gamla tankinn og höfðu gaman að.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica