Hjólhýsi fauk í Hvaldal
Hjólhýsi eyðilagðist í gærkvöldi í Hvaldal í Lóni. Hjón frá Reykjavík með tvö börn voru á leið suður og lentu í mikilli vindkviðu í miðjum Hvaldal með þeim afleiðingum að hjólhýsið fauk á hliðina og tættist í sundur í veðurofsanum. Fólkið slasaðist ekki en rúður fuku úr bílnum og er hann mikið skemmdur. Tjaldkerra fauk út af veginum við Þorgeirsstaði í Lóni í gærkvöldi og að sögn lögreglunnar á Höfn mun kerran vera ónýt. Hvasst var í Lóni í gærdag einkum í gærkvöldi og gekk á með sandbyljum í Hvaldal og feikna vindrokum. Mun betra veður var við Hvalnes en þar mældist vindhraði um og yfir 20m á þeim tíma sem hjólhýsið fauk. Tjón á ökurækjum eru algeng í Hvaldal og í Hvalnes og Þvottárskriðum þar sem veðravíti er mikið og grjóthrun í skriðunum. Það er mikið áhyggjuefni ekki síst í ört vaxandi umferð að ekki skuli flýtt fyrir nýju vegastæði milli Lóns og Álftafjarðar og þessi vegarkafli aflagður áður en mannskæð slys verða þar.
Mikil umferð var á suðausturlandinu í gær og að sögn lögreglunnar á Höfn voru ökumenn aldeilis til fyrirmyndar,, þeir voru eins og hugur manns og óku á 80-90 km hraða´´, sagði einn lögreglumaðurinn. Tvær bílveltur urðu fyrir helgina önnur í Suðursveit og hin í Nesjum, meiðsli á fólki voru lítilsháttar en mikið tjón á ökutækjum. Lögregla telur að ,,vegarolla´´ hafi orsakað annað slysið en þær eru víða við og á þjóðveginum.





Skrifa athugasemd