Júlí
Álaverkefnið
Álaverkefnið
Ari Þorsteinsson og Gísli Már Viljhjálmsson Álaverkefnið (úr myndasafni Fruman).

14.07.2006 Júlí

Sýning á Þjóðgarðsafurðum í Skaftafellsstofu

Laugardaginn 15. júlí n.k. verður opnuð sýning í Skaftafellsstofu á þeim hugmyndum sem fram komu í samkeppni um þjóðgarðsafurðir, sem fram fór í vor. Sýningin er árangur hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls sem hleypt var af stokkum í janúar síðastliðnum. Hugmyndasamkeppnin var öllum opin, en háð skilyrðum um að afurðin tengdist svæðinu umhverfis Vatnajökul, væri gæðaframleiðsla og markaðsvæn. Afurðin nær bæði til vöru og þjónustu. Alls 23 hugmyndir bárust í keppnina, hver annarri áhugaverðri. Fjöldi þátttakenda og gæði hugmyndanna sýnir óneitanlega þá sköpunargleði sem býr með þjóðinni. Fyrstu verðlaun hlaut Bjarney Ingólfsdóttir fyrir Jökulskallann, sem er gæruskinnshúfa. Önnur verðlaun hlaut Jóna Björg Jónasdóttir fyrir Náttúran úr ull, þ.e.silkihúfa, griffill og trefill. Þriðju verðlaunin hlaut Hornfirska Álafélagið, Fruman á Höfn, fyrir verkefni sem ber heitið Matur og menning, áll í ríki Vatnajökuls.

Meginmarkmið NEST verkefnisins er að nýta þau tækifæri sem felast í búsetu nálægt þjóðgörðum og öðrum verndarsvæðum með því að efla og stjórna ferðamennsku sem samræmist skilyrðum um sjálfbæra þróun. Verkefnið leitast við að tengja saman atvinnusköpun á jaðarsvæðum Norðurslóða og rannsóknir á sjálfbærri ferðamennsku. Stuðlað er að því að fá fólk til þess að koma saman, starfa saman og læra hvert af öðru að nýta auðlindir náttúru og menningar á sjálfbæran hátt. Í verkefninu er jafnframt leitast við að svara því hvernig unnt sé að auka þekkingu fólks á mikilvægi náttúruverndar og sjálfbærri þróun. Jafnframt er skoðað hvernig náttúruvernd og byggðaþróun jaðarsvæða geti farið saman og skapað svæðunum aukin verðmæti.

Undirbúningur að verkefninu hófst árið 2003 með samstarfi Háskólasetursins á Hornafirði og Kirkjubæjarstofu um þá hugmynd að sveitarfélögin sunnan Vatnajökuls sameinuðu krafta sína gegn fólksfækkun svæðisins með því að þróa sameiginlega stefnu í uppbyggingu ferðaþjónustu í sambandi við væntanlegan Vatnajökulsþjóðgarð. Sótt var um forverkefnisstyrk til Norðurslóðaáætlunar ESB sem fékkst í janúar 2004. Markmið forverkefnisins var að byggja upp sambönd við erlenda aðila með svipaðar áherslur og vinna að sameiginlegri umsókn til stærra verkefnis. Sú umsókn hlaut, í byrjun árs 2005, þriggja ára styrk frá Norðurslóðaáætlun ESB. Verkefnið hefur frá upphafi verið stýrt frá Háskólasetrinu á Hornafirði. Frekari upplýsingar um NEST verkefnið er að finna á heimasíðu

Þær afurðir sem fengu fyrstu, önnur og þriðju verðlaun verða til sýnis sem og aðrar innsendar tillögur.
Á sýningunni eru einnig verðlaunaafurðir frá hinum þátttökulöndum NEST verkefnisins, þ.e. Finnlandi, Svíþjóð og Skotlandi.

Sýningin opnar kl. 16 og verður í Skaftafellsstofu til 10. ágúst og eru allir hjartanlega velkomnir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica