Hafa fengið um 60 gráðu heitt vatn í landi Hoffells
Fyrir 14 árum var byrjað að bora eftir heitu vatni í landi Hoffells í Nesjum og núna eru menn fullir bjartsýni á að þessi leit beri góðan árangur. Ég hef alltaf haft mikla trú á að heitt vatn finndist hér hjá okkur sagði Þrúðmar Sigurðsson bóndi í Miðfelli, og ég veit að það er nóg af því, það er bara að hitta á nægjanlegt vatnsmagn á réttu dýpi. Búið er að bora niður í 504 metra dýpi þar sem fengist hefur um 60 gráðu heitt vatn sem gefur um 3 sek.lítra af 54° heitu vatni. Núna rennur upp úr þrem holum hérna og eru hitastigin 30 gráður, 28 gráður og vænlegasta holan með 54 gráðu heitt vatn. Reiknað er með að halda áfram borun í haust og bora niður á 8-900 m. dýpi.
Þrúðmar ætlar að koma heitavatnslögn heim að húsi sínu í haust og nýta vatnið til húshitunar en núna er hann með rafmagnshitatúbu á vatnskerfinu. Ég ætla að tengja heita vatnið inn á vatnshitakerfið sem fyrir er í húsinu og þetta verður ekki mikill kostnaður. Það verður mikil breyting fyrir okkur og gefur margvíslega möguleika og eins að geta nýtt afrennslið frá húsinu sagði Þrúðmar. Nágrannar hans eru með rafmagnshitun í húsum sínum og því verður lengra í að þeir fái heitt vatn til húshitunar og kostnaður þeirra meiri.





Skrifa athugasemd