Danir fjölmennir í Þjóðgarðinum Skaftafelli
Vatnavextir hafa eyðilagt tvær göngubrýr yfir Morsá í Skaftafellsþjóðgarði og því ekki hægt að ganga hringleiðina í þjóðgarðinum nema vaða Morsá og það er ekki fyrir aðra en vel knáa göngumenn segir Hafdís Roysdóttir. Brúin inn við Morsárdal nýtist ekki þar sem Morsá hefur flutt sig í nýjan farveg og rennur utan við brúna og grafið frá henni. Brúin sem er inn við Morsárjökul er alveg ónýt og virðist sem jakahlaup hafi komið í lónið þar í vetur og brotið brúna niður. Brúin við Hrafnagil, sem við köllum Rússarörið, hefur staðið alla vatnavexti vel af sér og er eina greiðfæra leiðin inn í Morsárdal um hana. Hafdís segir að búið sé að merkja þessar breytingar inná kort og þau reyni að láta alla sem þarna fara vita um þessa farartálma.
Hjarðarnesmenn og Vegagerðin hafa haft góð orð um að fara inn í Morsárdal og lagfæra brýrnar því það þarf stórvirk tæki til að laga jarðveginn þar sem Morsá rennur.
Ferðamenn láta ekki þessi brúarvandamál í þjóðgarðinum hafa mikil áhrif á sig og það er allt komið á fullt hjá okkur hér í þjónustumiðstöðinni sagði Sara Hrund, og hingað koma margar rútur á dag. Mér finnst fjöldinn vera svipaður og sl. ár og eru Skandinavar áberandi margir í ár einkum Danir og mun það vera að þakka góðri kynningu á Íslandi í sjónvarpi þar sem m.a. var sýndur þáttur um ferð um Ísland. Útlendingarnir hafa mikinn áhuga á jökul-gosmyndinni, fræðslusýningu um gosið 1996, sem sýnd er hér í þjónustumiðstöðinni. Í þessum mánuði er von á stórum hóp fólks, Englendingum og Ameríkönum, sem verða við jarðfræðirannsóknir hér á svæðinu og úti á sandi í einn mánuð.





Skrifa athugasemd