Júlí
Mastrið
Mastrið
Mastrið

12.07.2006 Júlí

Á vappinu um allt sveitarfélagið

Á Hornafirði eru engin umferðarljós eða stöðumælar og ekki höfum við stöðumælaverði, en á Hornafirði er sjónvarps-og afþreyingarþátturinn Mastrið. Í þættinum þetta kvöldið verða strákarnir á vappinu um allt sveitarfélagið og bregða undir sig betri fætinum og fara alla leið í Nesjahverfið og kíkja á leik með utandeildarliðinu Dýnamó Höfn og taka þar nokkra leikmenn tali. Sindri Ragg spjallar létt við krakkagríslingana og spyr þá m.a út í nýafstaðna heimsmeistarakeppni í knattspyrnu. Vítaspyrnukeppni Mastursins er alltaf á sínum stað og fáum við m.a annars að sjá Jón bakara í kvöld á vítapunktinum. Þá verður mjög skemmtilegt söngatriði í þættinum, en sigurvegarar í söngvakeppninni á Humarhátíð heimsóttu Forseta Mastursins GunnaAu, um daginn og tóku lagið fyrir hann.

Þetta, pizza frá Ósnum, gos og snakk frá Vífilfelli og margt fleira verður á Skjávarpinu í kvöld kl.20:00. Þáttur sem enginn borgari, smáborgari eða hamborgari ætti að láta framhjá sér fara.

- Masturshlunkarnir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica