Fleiri útlendingar á bílaleigubílum en áður
Aðsókn að Flosalaug og gistingu hjá Ólafi í Svínafelli hefur verið góð það sem af er sumri. Miðað við veður hefur þetta verið ágætt segir Ólafur, það var ansi blautt í júní og það sem af er júlí og vantar meiri hlýindi. Fjöldi ferðamanna er svipaður og á þessum tíma í fyrra en það sem er öðruvísi er að hópum hefur fækkað en þeim sem ferðast á eigin vegum hefur fjölgað mikið. Það er mikið meira um að útlendingar ferðist um landið á bílaleigubílum og margir koma með sína bíla með ferjunni til Seyðisfjarðar. Færri íslendingar hafa verið hér á ferðinni miðað við sama tíma í fyrra en það er nú svo um íslenska ferðamenn, þeir leita uppi besta veðrið og í sumar hefur það verið á norður- og austurlandi. Nú er orðið svo ,,stutt´´ á milli staða eftir að vegakerfið batnaði og því ekkert mál að skreppa milli landshluta þangað sem best viðrar.
Ólafur segir að þetta tíðarfar hafi sín áhrif á búskapinn í Öræfum, grasspretta á túnum sé seinna á ferðinni vegna kulda og vætu og því eru bændur lítið byrjaðir á heyskap.
Þó tíðarfarið sé ekki alveg eins gott og æskilegt væri segir Ólafur að mannlíf í Öræfasveit sé eins og alltaf, mjög gott og skemmtilegt.





Skrifa athugasemd