Júlí
Humarhátíð 2006
Humarhátíð 2006
Sveinbjörg stóð sig vel í sölunni á humarkræsðingum hjá Bestfiski
Mynd 3 af 3
1 2 3

06.07.2006 Júlí

300 kg. af humri fóru á grillið hjá Bestfisk

Grillaður humar er eitt af því sem tilheyrir humarhátíðinni á Hornafirði og humarilminn leggur yfir hátíðarsvæðið. Eigendur Bestfisks voru með gám á bryggjunni þar sem þeir grilluðu bæði humar og ýmiskonar fiskgóðgæti á pinnum. Sívar Árni var að vonum harðánægður með allt það lof sem þeir fengu og áætlar að um 300 kg af humri hafi farið á grillið. Fólk kom líka til að kaupa humarbakka til að fara með heim og grilla. Þessar góðu viðtökur og hrós sem Bestfisk-fólk fékk á humarhátíðinni fyrir það sem þeir voru með á boðstólum verður þeim góð hvatning fyrir enn meira úrval á næstu humarhátíð að ári.

Það er frábært að geta farið í Bestfisk-búðina og keypt humar eða fisk og skellt honum beint á grillið sem er hér til staðar, sagði ferðamaður sem leið átti um Hornafjörð, þessi þjónusta er til fyrirmyndar og ég er viss um að margir eiga eftir að koma og nýta sér þennan lúxus.
Með tilkomu fiskbúðarinnar geta Hornfirðingar keypt ferskan og ófrosinn fisk í matinn en lítið hefur verið um slíkan lúxus á boðstólum í mörg ár.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica