5 þáttur Mastursins sýndur í gærkvöldi
Í gær var miðvikudagur og sá miðvikudagur var ekki svo frábrugðinn öðrum miðvikudögum í sumar þar sem kempurnar í Mastrinu voru með glóðvolgan þátt á Skjávarpi í gærkvöldi. Þeir félagar voru þó ekki einir í þættinum því þeir fengu heimsókn frá 2 ungum, sterkum og fjallmyndarlegum drengjum, þeim Ólafi Alberti Sævarssyni og Ásgrími Arasyni. Ásamt því að stjórna þættinum sýndu þeir piltar stuttmynd sem þeir hafa nýlokið við að gera, CSI:Hornafjöðrur. Þátturinn var að mestu leyti tileinkaður nýafstaðinni Humarhátíð, en Mastrið var á svæðinu með vélina og tók púlsinn á því sem var að gerast um helgina, þ.á m. hið geysivinsæla kassabílarall Landsbankans.
Vítaspyrnukeppni Mastursins var á sínum stað í þættinum, en þar voru þeir mættir Stjáni Hauks eða Stinni einsog flestir Hornfirðingar þekkja hann best um allan heim og Gunnar Auðunn Masturströll, og ekki má gleyma Sævari "Emm" í gulu skikkjunni sem stóð á milli stanganna í þessari annars mögnuðu keppni.
Næsti þáttur Mastursins verður á Skjávarpi næsta miðvikudagskvöld og þá er bara að setjast fyrir framan imbann og njóta þeirrar afþreyingar sem hornfirsk ungmenni hafa uppá að bjóða í dag.
-Gísli Örn





Skrifa athugasemd