Júlí
Humarhátíð 2006
Humarhátíð 2006
Verdlaunahafar
Mynd 4 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

03.07.2006 Júlí

120 ára afmælishátíð Landsbankans og kassabílarallí

Fjölda fólks dreif að Landsbankanum á Höfn strax eftir hádegi á laugardaginn til að taka þátt í 120 ára afmælishátíð bankans og kassabílarallí sem bankinn stendur fyrir á hverri humarhátíð. Til þátttöku í rallíinu voru skráð 13 ökutæki, fjölbreytt að venju, frumleg og skemmtileg. Besta tíma í ökukeppninni og 1. sætið áttu þeir Þorgils Snorrason og Björn Rúnarsson á 16,99 sek. Í öðru sæti voru Jón Bjarni Sindrason og Gabríel Björgvinsson á 17,06 sek og þriðju voru Kristófer Ögmundsson og Arnar Freyr Valgeirsson á 17,65 sek. Allir hlutu kapparnir bikara og verðlaunapeninga fyrir frammistöðuna. Einnig fengu allir keppendur verðlaunapening fyrir þátttökuna.

Farandbikar og veglegan eignarbikar fyrir flottasta bílinn fengu systkinin Viktor og Díana Einarsbörn fyrir ,,Jökul?? sem er nákvæm eftirlíking af hjóla-bátunum á Jökulsárlóni sem pabbi þeirra á. Farandbikar fyrir frumlegasta bílinn, sem var sláttuvél með hægindastól, fengu Jóhann Björnsson og Gunnar St: Sigurðsson. Félagarnir Bárður og Gunni Helga aðstoðuðu við afhendingu verðlaunanna við góðar undirtektir krakkanna. Það var virkilega gaman að fylgjast með rall-köppunum og félögum þeirra þegar þeir voru að skoða ökutækin og ræða saman, það var bara smækkuð mynd af þeim fullorðnu þegar þeir eru að ræða kosti sinna ökutækja.

Landsbankinn bauð upp á grillaðar pylsur, mjólk, svala og tertu og var þeim veitingum gerð góð skil. Það var Ingólfur á Kaffihorninu sá um að grilla og voru grillaðar hátt í þúsund pylsur . Um 1500 börn og unglingar fengu bolta og blöðrum var dreift til barnanna.
Í Landsbankaútibúinu á Höfn starfa um 12 konur undir stjórn Jónu Ingólfsdóttur útibústjóra og til viðbótar eru tvær konur í Landsbankaútibúinu á Djúpavogi sem heyrir undir útibúið á Höfn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica