Júlí
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)
Himnaríki á jörð/ Heaven on earth
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) [myndasafn]

03.07.2006 Júlí

Hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls

Sýning á afurðum þjóðgarðsins opnuð í Geirlandi

Þriðjudaginn 4. júlí kl. 16:00 verður opnuð að Geirlandi í Skaftárhreppi sýning á afurðum þjóðgarðsins. Sýningin er árangur hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls sem hleypt var af stokkum í janúar síðastliðnum. Hugmyndasamkeppnin var öllum opin, en háð skilyrðum um að afurðin tengdist svæðinu umhverfis Vatnajökul, væri gæðaframleiðsla og markaðsvæn. Afurðin nær bæði til vöru og þjónustu. Alls 23 hugmyndir bárust í keppnina, hver annarri áhugaverðri. Fjöldi þátttakenda og gæði hugmyndanna sýnir óneitanlega þá sköpunargleði sem býr með þjóðinni. Sýningin verður opin á Geirlandi til og með 14. júlí, en þá verður hún flutt í Skaftafellsstofu. Henni mun svo ljúka í haust á Höfn í Hornafirði. Verðlaunaafhending fyrir þrjár bestu afurðirnar að mati dómnefndar fer fram samhliða opnun sýningarinnar á Geirlandi. Til mikils er að vinna en fyrstu verðlaun nema ? 2500.

Hugmyndasamkeppnin er hluti af svokölluðu NEST (Northern Environment of Sustainable Tourism) verkefni sem er samvinnuverkefni á milli Íslands, Finnlands, Svíþjóðar og Skotlands styrkt af Norðurslóðaáætlun ESB. Á sýningunni í Geirlandi verða jafnframt myndir af vinnings hugmyndum um þjóðgarðsafurð frá þátttökulöndum NEST.

Meginmarkmið NEST verkefnisins er að nýta þau tækifæri sem felast í búsetu nálægt þjóðgörðum og öðrum verndarsvæðum með því að efla og stjórna ferðamennsku sem samræmist skilyrðum um sjálfbæra þróun. Verkefnið leitast við að tengja saman atvinnusköpun á jaðarsvæðum Norðurslóða og rannsóknir á sjálfbærri ferðamennsku. Stuðlað er að því að fá fólk til þess að koma saman, starfa saman og læra hvert af öðru að nýta auðlindir náttúru og menningar á sjálfbæran hátt. Í verkefninu er jafnframt leitast við að svara því hvernig unnt sé að auka þekkingu fólks á mikilvægi náttúruverndar og sjálfbærri þróun. Jafnframt er skoðað hvernig náttúruvernd og byggðaþróun jaðarsvæða geti farið saman og skapað svæðunum aukin verðmæti. Til að uppfylla betur markmið verkefnisins er því skipt upp í fjögur þemu eða áherslusvið: i) tengslanet; ii) ný viðskiptatækifæri; iii) sjálfbær ferðaþjónusta og markaðssetning gæða; iv) náttúruskóli. Hvert þátttökuland hefur, umsjón og ábyrgð með einu áherslusviði og sér um að halda fjölþjóðlega ráðstefnu tengda því. Þegar hafa verið haldnar þrjár af fjórum fjölþjóðlegum ráðstefnum verkefnisins. Sú síðasta verður haldin hér á landi haustið 2006.

Undirbúningur að verkefninu hófst árið 2003 með samstarfi Háskólasetursins á Hornafirði og Kirkjubæjarstofu um þá hugmynd að sveitarfélögin sunnan Vatnajökuls sameinuðu krafta sína gegn fólksfækkun svæðisins með því að þróa sameiginlega stefnu í uppbyggingu ferðaþjónustu í sambandi við væntanlegan Vatnajökulsþjóðgarð. Sótt var um forverkefnisstyrk til Norðurslóðaáætlunar ESB sem fékkst í janúar 2004. Markmið forverkefnisins var að byggja upp sambönd við erlenda aðila með svipaðar áherslur og vinna að sameiginlegri umsókn til stærra verkefnis. Sú umsókn hlaut, í byrjun árs 2005, þriggja ára styrk frá Norðurslóðaáætlun ESB. Verkefnið hefur frá upphafi verið stýrt frá Háskólasetrinu á Hornafirði. Frekari upplýsingar um NEST verkefnið er að finna á heimasíðu verkefnisins www.nppnest.org og á heimasíðu Háskólasetursins á Hornafirði á www.hi.is/id/1010994.

Sýningin á afurðum þjóðgarðsins er öllum opin og eru allir hjartanlega velkomnir.

Rannveig Ólafsdóttir
Stjórnarformaður og verkefnisstjóri NEST

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica