Laugardaginn 15. júlí n.k. verður opnuð sýning í Skaftafellsstofu á þeim hugmyndum sem fram komu í samkeppni um þjóðgarðsafurðir, sem fram fór í vor. Sýningin er árangur hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls sem hleypt var af stokkum í janúar síðastliðnum. Hugmyndasamkeppnin var öllum opin, en háð skilyrðum um að afurðin tengdist svæðinu umhverfis Vatnajökul, væri gæðaframleiðsla og markaðsvæn. Afurðin nær bæði til vöru og þjónustu. Alls 23 hugmyndir bárust í keppnina, hver annarri áhugaverðri. Fjöldi þátttakenda og gæði hugmyndanna sýnir óneitanlega þá sköpunargleði sem býr með þjóðinni. Fyrstu verðlaun hlaut Bjarney Ingólfsdóttir fyrir Jökulskallann, sem er gæruskinnshúfa. Önnur verðlaun hlaut Jóna Björg Jónasdóttir fyrir Náttúran úr ull, þ.e.silkihúfa, griffill og trefill. Þriðju verðlaunin hlaut Hornfirska Álafélagið, Fruman á Höfn, fyrir verkefni sem ber heitið Matur og menning, áll í ríki Vatnajökuls.
Lesa meira