Mastrið komið í humarklæðin í kvöld
Það styttist í árshátið humarsins sem haldin er hátíðleg á hverju ári á Hornafirði og má segja að Mastrið sé komið í humarklæðin í þessum þætti, en þátturinn er að mestu helgaður komandi Humarhátið. Ásamt því að ræða við aðstandendur hátíðarinnar og öðrum sem henni tengjast, hittum við Stjána Hauks sem mun yfirgefa humarinn fyrir hestinn, en hann ætlar að fara á Landsmót hestamanna ásamt fögru föruneyti yfir helgina. Stórhljómsveitin og Hornfirðingar síðasta árs, Modis taka lagið í þættinum, alltaf gaman að sjá og hlusta á gott músík-atriði. Framhaldsheimildarmyndin eftir þá félaga Ása og ÓlaAlbert um Stórfót verður frumsýnd í þættinum, og verður gaman að sjá hverju drengirnir taka uppá í þetta skiptið.
Þá verður háður mikill og harður bardagi í vítaspyrnukeppni Mastursins þar sem barist er um Masturs-bikarinn, en í kvöld eigast við Mica(Miralem Haseta) og Jón Karl Jónsson.
Þetta er allsekki tæmandi talning á efni þáttarins, því ættu Hornfirðingar nær og fjær að geta sest spenntir fyrir framan sjónvarpið og staðið upp sáttir eftir góðan þátt á Skjávarpinu í kvöld sem hefst einsog áður kl.20:00 á Skjávarpinu.





Skrifa athugasemd