Júní
EFTA ráðstefna Höfn
EFTA ráðstefna Höfn
Undirritun fríverslunarsamningsins

27.06.2006 Júní

Um 150 manns tóku þátt í EFTA fundinum

Ráðherrafundur EFTA hófst á Höfn í gær kl 9 og lauk um kl. 18. Að fundi loknum var snæddur hátíðarkvöldverður í Skinney Þinganesi og að honum loknum var móttaka fyrir gestina á Jöklasýningunni. Í morgun héldu flestir fundarmenn upp á Skálafellsjökul þar sem farið verður á snjósleða og snjóbílum á jökulinn. Um 150 manns tóku þátt í fundinum og voru fundarstaðir í Nýheimum og á Hótel Höfn. Eitt af þeim málefnum sem afgreidd voru á fundinum var samþykkt á fríverslunarsamningi við samband Afríkuríkja og er það 16. fríverslunarsamningurinn sem gerður er.

Undir samninginn rituðu Odd Eriksen iðnaðar og viðskiptaráðherra Noregi, Joseph Deiss viðskiptaráðherra Sviss, Rita Kieber-Beck utanríkisráðherra Liechtenstein, Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra Íslandi og framkvæmdastjóri EFTA William Rossier Sviss.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica