Ráðherrafundur EFTA í Nýheimum um helgina
Sunnudaginn 25. júní hefst ráðherrafundur Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) í Nýheimum á Höfn. Fundinn sækja utanríkis-og viðskiptaráðherrar EFTA-landanna fjögurra, Íslands Liechtenstein, Noregs og Sviss, framkvæmdastjórn EFTA, dómarar hjá EFTA dómstólnum og fulltrúar frá Eftirlitsstofnun EFTA. Þá sækja þingmannanefnd og ráðgjafanefnd EFTA fundinn, ásamt fulltrúum frá Evrópusambandinu, sem munu funda með ráðgjafanefndinni. Ísland fer nú með formennsku í EFTA samstarfinu og er fundurinn haldinn við lok íslensku formennskunnar. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra leiðir fundinn á Höfn fyrir Íslands hönd, en ráðuneytið hefur undanfarið leitast við að halda fundi af þessu tagi á landsbyggðinni, til að gera samstarfsþjóðum Íslands kleift að kynnast aðstæðum í hinum dreifðu byggðu landsins. Síðasti ráðherrafundur EFTA sem Ísland hélt var árið 2002 og var hann haldinn á Egilsstöðum.
Utanríkisráðuneytið sér um undirbúning fundarins og sagði Nína Björk Jónsdóttir sendiráðsritari að undirbúnings nefndin væri mjög ánægð með fundaraðstöðuna hér á Höfn og nánast allt væri til staðar í Nýheimum sem til þyrfti fyrir svona fundi og ráðstefnur. Alls munu um 150 manns sækja fundinn. Auk fundaraðstöðu í Nýheimum verða fundir í stóra salnum á Hótel Höfn og veitingar fyrir fundarmenn verða á Hótel Höfn, Nýheimum, Kaffihorninu og Pakkhúsinu einnig verður hátíðarkvöldverður á mánudagskvöld í Skinney Þinganesi.
Miralem Haseta umsjónarmaður í Nýheimum, sem hefur í nógu að snúast við að undirbúa nær allar vistarverur í Nýheimum fyrir fundaraðstöður þar sem allt er uppsett eftir settum reglum frá undirbúningsnefnd, segir undirbúning ganga ljómandi vel. Það var ekki annað að sjá en hann nyti sín vel í þessu vandasama og krefjandi verkefni og sé tilbúinn að leysa hvert það vandamál sem upp kann að koma.
Bókasafnsverðir vilja koma á framfæri að bókasafnið í Nýheimum verður lokuð meðan EFTA fundurinn stendur yfir.





Skrifa athugasemd