Mikil eftirspurn eftir svínakjöti
Svínabúskapur blómstrar vel núna, mikil eftirspurn er eftir svínakjöti og verð á því hefur hækkað. Svínarækt er á tveim bæjum í Hornafirði, á Miðskeri í Nesjum og á Nýpugörðum á Mýrum. Pálína Benediktsdóttir og Sævar Kristinn Jónsson á Miðskeri eru með ellefu gyltur og fá um 300 grísi á ár. Svínaslátrun fer fram í sláturhúsi Norðlenska á Höfn og er slátrað grísum frá okkur á 3-4 vikna fresti segir Pálína og við keyrum kjötinu sjálf til kaupandans sem er Kjötvinnslan á Reyðarfirði en þangað seljum við allt okkar kjöt. Það er óneytanlega mikill munur að vera í svona búskap þegar mikil eftirspurn er eftir afurðunum eða þegar við höfum þurft að standa í sölunni sjálf til neytenda. Pálína segir svínabúskapinn skemmtilega búgrein og að svín séu gáfuð og skemmtileg dýr.
Elvar Sigurjónsson á Nýpugörðum er ekki eins hress með svínabúskapinn og Pálína og segist mikið vera að hugsa um að hætta með svínin og er þegar búinn að fækka þeim mikið.. Elvar er einnig með kindur og segist þá búgrein höfða mikið meira til sín.





Skrifa athugasemd