Júní
Birna og Christína á Seljavöllum með úrvals Hornafjarðarkaröflur
Birna og Christína á Seljavöllum með úrvals Hornafjarðarkaröflur
Birna og Christína á Seljavöllum með úrvals Hornafjarðarkaröflur (úr myndfasafni).

21.06.2006 Júní

Nýjar hornfirskar kartöflur eftir 3 vikur

Horfur eru á góðri uppskeru hjá kartöflubændum í Hornafirði og ekki nema þrjár vikur í að hægt verði að kaupa nýjar kartöflur í matinn. Kartöflur frá Miðskeri eru væntanlegar a.m.k. á heimamarkaðinn eftir þrjár vikur og framleiðendur á Seljavöllum, Akurnesi og Grænahrauni eru á svipuðum tíma með sína uppskeru og reikna með að sala verði komin í fullan gang eftir mánuð. Allir þessir kartöfluræktendur settu mun meira útsæði niður í vor en verið hefur og eru bjartsýnir á kartöflusölu. Valdimar Ingólfsson á Grænahrauni sagði síðustu kartöflurnar af uppskerunni frá síðasta hausti fara í búðir á morgun og hjá hinum framleiðendunum er allt löngu búið.

Meðan hornfirskir kartöfluframleiðendur eru fullir bjartsýni og bæta við sig er samdráttur í kartöflusölu á landsvísu og a.m.k. tveir stórir framleiðendur á suðurlandi hafa hætt kartöflurækt og snúið sér að öðru.

Birna Jensdóttir á Seljavöllum sagði að mikil ásókn væri í nýju kartöflurnar og sl. sumar hefðu um hundrað tonn farið beint úr garðinum í verslanir en ekki fyrst í hús til hreinsunar og pökkunar. Birna sagði mikla breytingu vera á kartöfluneyslu fólks, forsoðnar kartöflur seljast vel og svo eru fjölbreytni orðin svo mikil í vinnslu og matreiðslu á kartöflum að venjulega soðnar kartöflur eru ekki eins sjálfsagðar með matnum og áður.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica