Júní
Skemmdarverk í Haukafelli
Skemmdarverk í Haukafelli
Brotnar rúður
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

19.06.2006 Júní

Hæ hó jibbíjajei það er komin 17. júní.

17. júní er í hugum okkar flestra dagur gleði útiveru og útidansleikja, með blöðrum, fánum og öllu tilheyrandi. Þetta er jú líka þjóðhátíðardagurinn okkar. En okkur sem undanfarin ár, höfum haft veg og vanda af því að gera útivistarsvæðið í Haukafelli að því sem það er í dag, brá heldur en ekki í brún laugardagsmorguninn 17. júní. Vegurinn inn að Haukafelli var varðaður með bjórdósum og rusli og þegar komið var inn á sjálft skógræktarsvæðið var aðkoman þar ekki falleg. Búið var að brjóta rúður í þjónustuhúsinu, kveikt hafði verið bál á tjaldstæðinu og á það hafði verið hent alls konar viðleguútbúnaði. Tjaldstæðið sjálft var ekkert nema glerbrot og útspólað. Það er augljóst af öllum ummerkjum að þarna hafði ekki verið nein venjuleg útilega. Myndirnar tala sínu máli. Flest erum við alin upp við þá sjálfsögðu reglu að geri einhver eitthvað á annars hlut, eða valdi einhverjum tjóni, þá skuli sá hinn sami bæta fyrir það og biðjast afsökunar.

Við teljum okkur hafa nokkuð öruggar heimildir fyrir því hverjir voru þarna á ferð. Því skorum við á þá sem þarna áttu hlut að máli að gefa sig fram við okkur liðsmenn Skógræktarfélagsins og hjálpa okkur að bæta það tjón sem að þeir hafa valdið, það er okkur meira virði en kærumál og lögregluskýrslur.

Rannveig Einarsdóttir sími 6991424
Sigurður Karlsson sími 8636185

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica