Júní
Darri Snær
Darri Snær
Darri Snær ásamt Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni forseta
Mynd 2 af 2
1 2

19.06.2006 Júní

Fékk verðlaun afhent af forsetahjónunum fyrir krúttlegustu myndina

Á miðvikudagskvöld s.l. var hringt í Darra Snæ Nökkvason og honum boðið til Bessastaða á sunnudeginum til að taka á móti verðlaunum í Skákmyndkeppni Taflfélagsins Hróksins en Darri hafði sent mynd í keppnina eftir að nemendur í Hafnarskóla voru hvattir til að taka þátt í henni. Það sem skipti máli í keppninni var að myndin tengdist á einhvern hátt taflmennsku. Um 300 myndir bárust og voru veitt verðlaun fyrir frumlegustu, skemmtilegustu og krúttlegustu myndina en það var krúttlegasta myndin sem Darri teiknaði. Mynd Darra var af drottningu sem var að detta út af taflborðinu og hélt hún fast í kónginn. Verðlaunin voru afhent af Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni forseta og Dorrit Moussaieff forsetafrú. Faðir Darra, Nökkvi Jóhannesson sagði Darra mjög hugmyndaríkan og að hann gæti teiknaði skemmtilegar myndir. Nökkvi sagði einnig að allar myndirnar sem sýndar sendar voru í keppnina og sýndar voru á Bessastöðum hefðu verið mjög flottar.

Helsta áhugamál Darra er að sjálfsögðu fótboltinn og eftir að hann kom frá Reykjavík þá hélt hann beint í keppnisferð með Sindra austur á Hérað.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica