Fyrsta skipið við Austurfjörubryggju
Laust fyrir hádegi í dag lagðist Milady að nýju bryggjunni við Austurfjörur til að lesta 3500 tonn af perlumöl sem fer til Ameríku. Milady er 5500 tonn og átti skipið ekki í neinum vandræðum með að leggjast að bryggjunni með góðri aðstoð hafnsögubátsins. Búið er að gera 20 m langa bryggju við Austurfjörur innanfjarðar skammt innan við ósinn og innsiglingin þar dýpkuð með uppdælingu á 30 þús.rúmmetrum efnis. Byrjað verður að lesta skipið í dag og taldi Ómar að það gæti tekið um einn sólarhring. Ómar Antonsson á Horni hefur veg og vanda af sölu á perlumöl af Austurfjörum sem fer bæði á Reyðarfjörð og til Ameríku. Búið er sigta um 10 þúsund tonn af möl sem tilbúin er til afhendingar
Nokkrir skipsfarmar hafa farið til Reyðarfjarðar og er þetta annar farmurinn sem fer til Ameríku. Nýja bryggjan við fjörurnar gjörbreyta aðstöðu við lestun skipa sem áður hafa lestað möl við Óslandsbryggju.
Í næstu viku lestar skip möl til Reyðarfjarðar og næsta Ameríkuskip er væntanlegt í ágúst.





Skrifa athugasemd