Júní
Gamlabúð í viðgerð
Gamlabúð í viðgerð
Gamlabúð í viðgerð

16.06.2006 Júní

Gamlabúð máluð

Útliti Gömlubúðar, sem hýsir byggðarsafn Austur-Skaftfellinga, hefur hrakað mikið undanfarnar vikur og húsið orðið frekar illa útlítandi. Björn Arnarson safnvörður segir að byrjað sé á lagfæringum á húsinu og að Málningarþjónusta Hornafjarðar muni sjá um að mála húsið að utan og ef ekki rigni mikið næstu daga ætti verkinu að vera lokið fyrir humarhátíð. Björn segir aðsókn að safninu vera góða, svipaða og var í fyrra sem var mjög gott aðsóknarár.

Byggðasafnið verður opið frá kl. 13.00-18.00 til 1. júlí en eftir það verður safnið opið frá kl. 9.00 - 18.00. alla daga. Opið er í Pakkhúsinu frá kl. 13.00-18.00 og Jöklasýningin frá 9.00-21.00.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica