Júní
Nýheimar
Nýheimar

16.06.2006 Júní

Innritun lokið fyrir sumarleyfi hjá FAS.

Nú er innritun lokið fyrir sumarleyfi hjá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Skrifstofa skólans verður lokuð frá 16. júní til 8. ágúst. Áfram er þó hægt að sækja um skólavist á vef skólans undir liðnum "Umsókn um skólavist", þar til skóli hefst 22. ágúst. Ekki verður þó tekið tillit til umsókna sem berast eftir 15. ágúst við gerð stundatöflu. Frestur til að sækja um fjarnám er til 30. ágúst. Alls eru nú skráðir um 110 nemendur á haustönn. Umsóknir um vélstjórnarnám voru 17, umsóknir nemenda úr 10. bekk voru 32 og aðrar umsóknir voru á annan tuginn.

Þetta eru töluvert fleiri umsóknir en á sama tíma í fyrra og munar þar mest um vélstjórnarnámið en umsóknir 10. bekkinga eru einnig töluvert fleiri.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica