Fegra, snyrta og prýða
Fremur fáliðað er í unglingavinnunni hjá Hornafjarðarbæ það sem af er sumri aðeins 43 skólanemar. Ástæðan fyrir þessu er gott atvinnuframboð í bæjarfélaginu og krakkarnir eiga kost á að komast í aðra vinnu svo sem í fiskvinnslu, við afgreiðslustörf og á hótelum og gistiheimilum á svæðinu. Það er fámennt og góðmennt hjá okkur sagði Bjarni Ólafur Stefánsson sem hefur yfirumsjón með unglingavinnunni, við erum með einn verkstjóra og fimm flokksforingja og þessum 43 er skipt í smáhópa. Þó þetta séu færri krakkar en oftast áður eru vinnuafköst mikil og það er alveg óhætt að segja að sex manna hópur skilar hlutfallslega mun meiri vinnu en 12 í hóp þar sem mikið betur er hægt að leiðbeina hverjum og einum unglingi þar sem færri eru saman. Við erum í þessum hefðbundnu störfum þ.e. að fegra og snyrta bæinn og í dag erum við að gera Hóteltúnið tilbúið fyrir 17.júní hátíðarhöldin.
Bærinn er fljótur að breyta um svip þegar krakkarnir eru komnir til starfa, allt rusl á bak og burt og grasblettir slegnir og rakaðir. Bjarni segir að mun fleiri strákar en stelpur séu í bæjarvinnunni því stelpurnar kjósa frekar hótelstörfin og við erum síkát hér í góða veðrinu og njótum okkar vel við að gera umhverfi okkar sem flottast.





Skrifa athugasemd