Júní
Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir
Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir
Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir við göngin undir Alamannaskarð
Mynd 1 af 2
1 2

15.06.2006 Júní

Hjólað fyrir velferð barna 2006

Um kl. 2.30 í dag renndu reiðhjólakapparnir Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir í gegn um Almannaskarðsgöngin í fylgd lögreglunnar á Höfn. Bjarki og Gyða eru á hringferð um landið í þágu Velferðarsjóðs barna undir kjörorðinu ,, Hjólað fyrir velferð barna 2006´´ og komu þau frá Hvannabrekku í Berufirði í dag. Þau héldu ferð sinni áfram frá Akureyri sl. mánudag og hafa fengið allskonar veður og t.d. var snjór á Mývatns- og Möðrudalsöræfum en hjólin dugðu vel í snjónum og allt hefur gengið vel. Í fyrra sumar gekk Bjarki hringinn um landið undir kjörorðinu ,,haltur leiðir blindan´´ og vakti sú ferð verðskuldaða athygli og því ákvað hann að gera enn betur og hjóla hringinn í sumar í þágu barna með geðraskanir og fjölskyldna þeirra sem þurfa svo sannarlega á hjálp að halda. Í vetur var ákveðið að Gyða Rós tæki þátt í ferð Bjarka og hafa þau þjálfað sig vel og undirbúið ferðina í vetur.

Gyða Rós segir að þetta gangi allt í sátt og samlyndi á ferðalaginu hjá þeim, ég er svona eins og mamma, sé um að hann vakni á réttum tíma á morgnana og er stundum stjórnsöm. Bjarki harðneitaði fyrst þessari yfirlýsingu ferðafélagans en varð svo að samþykkja að þetta komi fyrir og bætti svo við að það væri ágætt að hafa hana með. Ferðafélagarnir halda ferð sinni áfram á morgun og ætla þau að koma til Reykjavíkur 24.júní og hafa þá hjólað um 2700 km frá því að þau fóru frá Reykjavík um miðjan maí.

Til gamans skal geta þess að bæði Bjarki og Gyða Rós tengjast Hornafirði, Gyða Rós er barnabarn Birnu Skarphéðinsdóttur og Gunnars Hermannssonar. Og svo er það langamma Bjarka sem hét Valgerður Þorleifsdóttir og var frá Bæ í Lóni. 

Gyða Rós ætlar að ,,ganga í það heilaga"  5. ágúst og því fer hún beint í brúðkaupsundirbúninginn þegar heim kemur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica