Fuglaskoðunarferð í Ósland
Svo sem venja hefur verið undanfarin 5 ár stendur Menningarmiðstöð Hornafjarðar fyrir ýmsum námskeiðum og kynnisferðum fyrir börn á grunnskólaaldri. Í sumar verður þessi starfsemi í samvinnu við Sindra en Sigurður Örn Hannesson. Fyrsta skoðunar og kynnisferðin var í dag undir góðri leiðsögn starfsmanna Fuglaathugunarstöðvarinnar á Hornafirði þeirra Brynjúlfs Brynjólfssonar og Björns Arnarsonar. Mæting var við höfnina hjá Akurey og síðan var stefnan tekin á Óslandið þar sem fuglalíf er fjölbreytt með kríurnar í algjörum meirihluta og því betra að hafa góða húfu.
Næsta kynnisferð verður 20. júní, þá verður farið í Hafnarrölt í fylgd Ara Þorsteinssonar og meðal annars skoðað álaeldi í Miklagarði.





Skrifa athugasemd