Júní
Eldur í Hæðargarði 9
Eldur í Hæðargarði 9
Skökkviliðsmenn við Hæðargarð 9 í Nesjum

13.06.2006 Júní

Bruni í Hæðargarði 9 í Nesjum

Slökkvilið Hornafjarðar var kallað að Hæðargarði 9 í Nesjum rétt fyrir kl.13 í dag og þegar slökkviliðið kom á staðinn var mikill eldur og reykur um allt húsið. Fjórir reykkafarar voru sendir inn með slöngur og gekk greiðlega að ráða við mesta eldinn en rjúfa þurfti þakið að hluta þar sem eldurinn hafði borist gegn um falskt loft hússins og í þakið. Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri sagði að slökkvistarf hafi gengið vel en tjón er mikið og miklar skemmdir eru á húsinu og allt inni meira og minna skemmt af reyk.

Ekki er vitað um eldsupptök annað en að þau voru í þvottahúsinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica