Júní
Tjaldur á þjóðvegi nr.1
Tjaldur á þjóðvegi nr.1
Tjaldur á þjóðvegi nr.1
Mynd 1 af 3
1 2 3

13.06.2006 Júní

Tjaldstæði á þjóðvegi 1

Fuglar eru oft alveg ótrúlegir þegar þeir velja sér hreiðurstað og oft erfitt að átta sig á af hverju er valinn staður sem mönnum finnst stórhættulegur fyrir hreiður. Við þjóðveg eitt í Lóni á tjaldur hreiður á vegarbrúninni og ekki annað að sjá en hann sé ánægður með staðarval þó umferð sé mikil. Í hreiðrinu eru tvö egg og líklega stutt í að þar komi ungar en útungunartími er ca. 18-19 dagar samkvæmt upplýsingum frá Birni Arnarsyni fuglaáhugamanni. Tjaldurinn virðist sallarólegur í allri bílaumferðinni og liggur kyrr á hreiðri sínu og kannski er þetta hans aðferð til að tryggja hreiður sitt fyrir minki og tófu.

Björn segir fuglavarp vera heldur í seinna lagi t.d. er kríuvarp að byrja núna á Breiðamerkursandi en ,,Óslands-kríurnar´´ fóru mun fyrr að verpa. Lítið hefur verið um flækingsfugla í sumar þó sáust bæði landsvölur og bæjarsvölur nýlega. Mikið af flækingsfiðrildum sást hér á svæðinu sl. laugardag, voru það bæði aðmíráls- og þistilfiðrildi.

Venjulega er mikið um fiðrildi í júní og svo í ágúst.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica