Júní
Sólarlag við höfnina
Sólarlag við höfnina

13.06.2006 Júní

Áhöfnin á Þinganesi SF 25 fær viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu

Fréttatilkynning

Á sjómannadag veitti Slysavarnafélagið Landsbjörg hina árlegu viðurkenningu til áhafna skipa sem sótt hafa námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna og sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund að mati kennara skólans. Viðurkenningin er farandbikar sem afhentur er til varðveislu um borð í viðkomandi skipi í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Áhöfnin á Þinganesi SF 25 frá Hornafirði hlaut viðurkenningu ársins 2006. Gunnar Þorgeirsson stjórnarmaður hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu afhenti viðurkenninguna og veitti Jón Sigurðsson skipstjóri henni móttöku fyrir hönd áhafnar sinnar.

Athöfnin fór fram í Slysavarnaskóla sjómanna um borð í Sæbjörgu skólaskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica