Júní
Skaftafell
Skaftafell
Velkomin í Skaftafellsstofu. Ragnar Framk talar við fólkið (úr myndasafni)
Mynd 1 af 3
1 2 3

12.06.2006 Júní

Aldrei verið jafn vel undirbúið fyrir sumarið og núna

Í sumar komu sex erlendir sjálfboðaliðar til vinnu í þjóðgarðinum í Skaftafelli og verða í sex mánuði. Mennirnir vinna átta tíma á dag og er þetta mikill arður fyrir þjóðgarðinn að fá svona vinnukraft segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Það er allt á fullu hér hjá okkur og aldrei verið jafn vel undirbúið fyrir sumarið og núna sem þakka má auknum starfsmannafjölda sem hér er. Núna eru þrír fastráðnir starfsmenn í þjóðgarðinum í Skaftafelli og til viðbótar verða ráðnir um tíu íslenskir sumarstarfsmenn, einnig koma erlendir sjálfboðaliða eins og verið hefur , hópar sem eru smátíma hver.

Ragnar sagði að starfsfólkið og ekki síður margir gestanna söknuðu Björns Sigfússonar (Bödda á Brunnavöllum), sem verið hefur starfsmaður í Skaftafelli undanfarin sumur, hann verður ekki með okkur í sumar þar sem hann hefur ráði sig annað og hans verður sárt saknað.
Eins og síðastliðið sumar var farið með hóp kinda inn í Morsárdal og þeim beitt í lúpínuna í þeim tilgangi að hefta útbreiðslu hennar og útrýma henni þar sem hún er ekki æskileg. Það er Ármann bóndi í Svínafelli sem lánar þjóðgarðinum kindur, 20 ær með lömbum. Ragnar segir mjög góðan árangur hafa orðið af beitinni á lúpínuna í fyrra og ætti að verða enn betri í ár þar sem núna var farið 14 dögum fyrr með kindurnar inn í dal og þær ráðist á nýsprottinn gróðurinn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica