Júní
Kvennahlaup 2005
Kvennahlaup 2005
Myndalegur hópur við Sporthöllina í lok hlaupsins (úr myndasafni 2005)

10.06.2006 Júní

Kvennahlaupið hefst í dag frá Sporthöllinni

Kvennahlaupið hefst í dag frá Sporthöllinni kl. 11. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ mun fara fram á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis en árlega taka um 18.000 konur á öllum aldri þátt. Meginmarkmið Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ er að hvetja og styðja konur á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilsueflingar. Konur eru hvattar til að vera á iði ekki aðeins þennan eina dag heldur sem flesta aðra daga ársins. Allar konur geta tekið þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ á sínum forsendum, óháð aldri og líkamlegri getu. Í ár er yfirskrift Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ ?Hvert skref skiptir máli. ÍSÍ og UNIFEM á Íslandi hafa skrifað undir samstarfssamning með það að markmiði að vekja athygli á starfi UNIFEM í þágu kvenna, sérstaklega í Afganistan, og hvetja íslenskar konur til að sýna samstöðu með mannréttindum kvenna um leið og þær efla eigin heilsu. 50 kr. af hverjum seldum bol mun renna til UNIFEM.

Þátttökugjald er 1000 krónur og fá allir þátttakendur bol og verðlaunapening.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica