Júní
Sjómannadagsblað Austurlands 2006
Sjómannadagsblað Austurlands 2006
Sjómannadagsblað Austurlands 2006

09.06.2006 Júní

Sjómannadagsblað Austurlands 2006 komið út

Tólfti árgangur Sjómannadagsblaðs Austurlands er kominn út og eru efnistökin fjölbreytt að vanda. Á meðal efnis er umfjöllun, í máli og myndum, um átök Breta og Íslendinga í þriðja þorskastríðinu sem lauk fyrir 30 árum, sagt frá mannskæðasta harmleik siglingasögunnar og viðtal við sjómanninn, sögumanninn og Norðfirðinginn Kristinn Pétursson sem lengi bjó á Hornafirði. Már Karlsson á Djúpavogi segir frá sjávarháska sem áhöfnin á Sunnutindi SU lenti í á síldveiðum árið 1961 og birt er brot úr óútgefnum æviminningum Vilhjálms heitins Árnasonar hæstaréttarlögmanns. Þá er einnig sagt frá síldveiðum á Íslandsmiðum á nítjándu öld og umfjöllun um ísbirni við Austfirði og margt fleira.

Sjómannadagsblað Austurlands er hátt i 100 síður að stærð með vel á annað hundrað ljósmynda. Ritstjóri blaðsins er Kristján J. Kristjánsson frá Norðfirði.

Utan Austurlands er meðal annars hægt að nálgast blaðið í Grandakaffi og verslunum Pennans - Eymundsson á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að panta blaðið í tölvupósti með því að smella hér.

Hægt er að nálgast Sjómannadagsblað Austurlands á Höfn hjá Þórgunni í síma 899 5609

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica