Flytur kindur sínar út í Mikley á hverju sumri
Á hverju sumri hefur Karl Sigurðsson ( Kalli á Móhól) flutt kindur sínar út í Mikley þar sem þær hafa unað vel við sitt í góðu graslendi til hausts og þegar flest var voru þar um 50 kindur. Nú er Kalli hættur sínum fjárbúskap og er búinn að gefa kindurnar en hann tekur enn þátt í að koma þeim til sumarveru í Mikley og um helgina ferjaði hann kindur og lömb út í Mikley. Kalli er aðeins farinn að skoða silunginn í firðinum og segir að mun meira æti sé innan fjarðar en var í fyrra og samkvæmt því ætti að geta orðið þokkaleg veiði. Það gæti því farið að styttast í að hægt verði að kaupa nýveiddan silung í matinn.
Kalli hefur annast um æðarvarp í nokkrum hólmum í firðinum en segir að það líti illa út með varp á þessu sumri, bæði er það kuldinn í vor og þó einkum minkurinn sem hreinsar burt eggin úr hreiðrunum. Minkurinn hefur verið skæður í hreiðrum í Mikley og hrakið mest af æðarfuglinum úr eyjunni.





Skrifa athugasemd