Júní
Hjolad_34942_0214
Hjolad_34942_0214
Hjólað til góðs (@Víkurfréttir]

06.06.2006 Júní

Hjóla hringinn til að safna fé fyrir langveik börn á Íslandi

Fjórir lögreglu- og slökkviliðsmenn frá Suðurnesjum eru að hjóla hringinn um Ísland og safna fé fyrir langveik börn á Íslandi. Í morgun var lagt upp frá Klaustri og hjólað til Hafnar. Þetta er lengsti hluti leiðarinnar, um 200 km. Verkefnið hófst að morgni Hvítasunnudags en gert er ráð fyrir að hringferðin taki 10 daga. Í dag, þriðjudag, er þriðji dagurinn þeirra í ferðinni. Hægt er að fylgjast þeim félögum á vefslóðinni www.vf.is/hjolad en þar rita þeir pistla sem lýsa ferðinni. Reiknað er með að ferðalangarnir verði komnir á Höfn síðdegis í dag eða undir kvöldið.

Fyrirtæki og einstaklingar eru hvattir til að leggja málefninu lið með framlagi inn á söfnunarreikninginn við Sparisjóðinn í Keflavík. Númer hans er 1109-05-411115 og kennitalan er 610269-3389.

Sjá allt um söfnunina og söfnunarreikninginn á vefnum www.vf.is/hjolad

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica