Júní
Leikskólagangan 2006
Leikskólagangan 2006
Leikskólagangan 2006
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

02.06.2006 Júní

Fóru í sína árlegu leikskóla-skrúðgöngu

Krakkarnir í leikskólunum Lönguhólum og Krakkakoti fóru í sína árlegu leikskóla-skrúðgöngu, vorgönguna, í gærmorgun. Með í göngunni voru fóstrur, foreldrar og systkini og á undan göngunni fór lögreglubíll. Gengið var frá Krakkakoti út Hafnarbraut að Nýheimum þar sem stansað var um stund, sest niður, sungið og allir fengu svala að drekka og síðan var haldið inn Kirkjubraut að Lönguhólum. Þetta er í þriðja sinn sem leikskólarnir fara í vorskrúðgöngu og á hún að vera árlegur viðburður og eins og í öllum góðum skrúðgöngum voru þátttakendur í grímubúningum og furðufötum. Rúmlega hundrað börn eru í báðum leikskólunum og segir Snæfríður Svavarsdóttir leikskólastjóri í Krakkakoti að pláss sé fyrir fleiri börn.

Snæfríður segir að nokkrar breytingar séu framundan á leikskólunum, jákvæðar breytingar, og búið sé að samþykkja að báðir leikskólarnir verði tveir sjálfstæðir leikskólar báðir fyrir aldurinn 1-6 ára. Leikskólastjóri á Lönguhólum er Margrét Ingólfsdóttir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica