Húsasmiðjan opnaði á Höfn í morgun
Húsasmiðjan opnaði verslun sína í morgun þar sem áður var byggingavörudeild Kask. Gunnar Hermannsson ,sem verið hefur verslunarstjóri byggingavörudeildarinnar frá opnun hennar verður verslunarstjóri Húsasmiðjunnar á Höfn. Gunnar er ánægður með nýju verslunina, breytingarnar hafi gengið í gegn á örstuttum tíma og hér verður boðið upp á miklu fjölbreyttara vöruúrval. Sama verð er í verslunum Húsasmiðjunnar um allt land og þær vörur Húsasmiðjunnar sem ekki eru til staðar munum við útvega. Gunnar vill benda á að vörulisti Húsasmiðjunnar sem kom í póstinum í gær er að sjálfsögðu í fulli gildi hér og öll tilboð sömuleiðis.
Opnunarhátíð verður haldin í þessum mánuði en ekki er búið að ákveða hvaða dag og má þá búast við einhverjum skemmtilegum og góðum tilboðum. Gunnar segir að starfsmenn verði um fimm í sumar sem er svipað og verið hefur í byggingavörudeildinni og hann segist afskaplega ánægður með nýju verslunina og bjartsýnn á framtíð hennar.





Skrifa athugasemd