Júní
Öræfaferðir 200
Öræfaferðir 200
Öræfaferðir 200 (@Einar)

01.06.2006 Júní

Það verður að taka snjóflóðahættu með í reikninginn

Mörg hundruð manns hafa lagt leið sína á Vatnajökul og gengið á Hvannadalshnúk undanfarnar vikur, fleiri en nokkru sinni áður. Þetta eru alltaf að verða vinsælla og vinsælla og sumir ganga á hnúkinn árlega. Einar Sigurðsson í Hofsnesi segir að þokkalega líti út með færð á jökulinn um hvítasunnuna en snjóflóðahætta er enn, það verður að taka það með í reikninginn. Á uppstigningadag snjóaði mikið á jökulinn og þegar Einar fór á jökulinn sl.sunnudag var færi upp mjög erfitt, um 50 cm. nýfallinn snjór yfir öllu, hafði snjóað á harðan snjó, viðloðun þá var nokkuð góð en það er fljótt að breytast. Það sem gerist núna þegar hlýnar í veðri er að þessi nýja þekja þyngist svo mikið þegar hún blotnar og þá þarf ekki annað en ,,ýta á gikkinn?? til að allt fari á stað. Einar var einn þeirra sem lagði á jökulinn til hjálpar mönnunum sem lentu í snjóflóðinu sl. þriðjudag og var kominn upp í 16-17 hundruð m.hæð þegar hann heyrði að björgunarlið væri komið á staðinn og sneri því við.

Á leið niður jökulinn tók Einar snjóflóðaprufu í 1400 m. hæð og útkoman úr því var snjóflóðahætta á háu stigi og sagði hann að staðan þennan dag, sem var fyrsti hlýviðrisdagur sumarsins, sé algjört skólabókardæmi um hvenær ekki á að fara upp á jökulinn. Þetta er eitt af því sem leiðsögumenn kunna góð skil á en enginn slíkur mun hafa verið í hópnum sem lenti í snjóflóðinu. Það er eitt af hlutverkum leiðsögumanns að sjá um að fólk sé í góðum skjólfatnaði fyrir þær aðstæður sem eru á jöklinum því lendi menn í slysi er mikil hætta á ofkælingu meðan beðið er hjálpar.

Stórir hópar fólks hafa undanfarið lagt leið sína á Hvannadalshnúk með Fjallaleiðsögumönnum sem eru með marga leiðsögumenn á sínum vegum, menn sem ég treysti fullkomlega segir Einar, en því miður er alltof mikið af mönnum sem telja sig fullfæra leiðsögumenn á jökulinn hafi þeir farið þar upp. Mér finnst að þeir sem standa fyrir svona amatöraferðum ættu að hugsa sinn gang svolítið, það er ekki nóg að vera búinn að læra að binda einn hnút á línu og halda þá að þeir kunni þetta allt og séu fullfærir að fara fyrir fólki þarna upp, en því miður það er svo margt fleira sem til þarf.

Einar velur oftast Hnappaleiðina á jökulinn því hún sé öruggust. Ég vil helst vera á henni öryggisins vegna því þar get ég frekar komið fólki niður í bíl verði óhapp eða slys, sem ég hef reyndar þurft að gera. Til að forðast snjóflóðahættu núna fer ég gjarnan með mína hópa af stað upp úr miðnætti til að vera kominn á upp á toppinn snemma morguns og niður áður en hitna fer í veðri uppúr hádeginu og snjórinn blotnar segir Einar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica