Húsasmiðjan tekur við rekstri KASK Byggingarvörudeildar
Frá og með 1. júní mun Húsasmiðjan taka við rekstri KASK Byggingarvörudeildar og opna breytta verslun föstudaginn 2. júní. Gunnar Hermannsson verður verslunarstjóri og starfsfólk það sem starfaði í KASK Byggingarvörudeild mun starfa við nýju verslunina áfram. Með tilkomu nýju Húsasmiðjuverslunar á Höfn eru Húsasmiðjuverslanir á landsbyggðinni orðnar alls 13, auk verslana Ískrafts og Blómavals. Ef taldar eru með verslanir Húsasmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu og verslunum Blómavals, H.G. Guðjónssonar og Ískrafts eru verslanirnar Húsasmiðjunnar orðnar alls 29 á landsvísu. "Við hjá Húsasmiðjunni vonum að íbúar á Höfn og nærsveitum taki þjónustunni vel og taki þátt í frekari uppbyggingu á versluninni", segir Steinn Logi Björnsson, forstjóri Húsasmiðjunnar.
"KASK byggingavörur hafa á að skipa hæfu starfsfólki, sem mun starfa í þessari nýju Húsasmiðjuverslun og hjálpa okkur að byggja hana enn frekar upp. Með þessari nýju verslun erum við að "loka hringnum", því áður var breitt bil frá Reyðarfirði að Hvolsvelli, þannig að nú eiga allir landsmenn þess kost að versla hjá okkur án þess að þurfa að leggja of langa leið að baki.
Við stefnum að auknu vöruúrvali í þessari nýju verslun á Höfn og munu heimamenn fljótt verða varir við aukið vöruframboð. Í þessu tilliti viljum við líka undirstrika að sama verð er í verslunum okkar um allt land, og þar að auki geta viðskiptavinir okkar gengið að því vísu að verðvernd Húsasamiðjunnar tryggir ávallt hagstæðasta vöruverð hverju sinni," segir Steinn Logi Björnsson.





Skrifa athugasemd