Ríki Vatnajökuls - Maí
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Hjalti Þór ráðinn sem nýr bæjarstjóri
      <description>Nýr meirihluti hefur ákveðið að ráða Hjalta Þór Vignisson sem nýjan bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Gengið verður frá ráðningu hans á næstu dögum en búið að handsala ráðninguna og mun hann taka við starfi bæjarstjóra um leið og ný bæjarstjórn tekur til starfa sem er um miðjan júní. Að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar forseta bæjarstjórnar þá var einhugur meirihlutans að ráða Hjalta í starfið og vilji að nýta það fólk sem hér er á staðnum. Árni vonaðist til þess að sátt væri um þessa ákvörðun innan Sveitarfélagsins og var hann viss um að ráðning Hjalta Þórs yrði sveitarfélaginu til heilla.</description>
Nýr meirihluti í Bæjarstjórn Hornafjarðar
      <description>Ný bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjöður tók til starfa um hádegi í dag. Framsókn og Samfylkingin hafa undirritað samstarfssamning þar sem Árni Rúnar Þorvaldsson Samfylkingunni verður forseti bæjarstjórnar og Reynir Arnarson Framsókn verður formaður bæjarráðs. Þegar kjörtímabil er hálfnað munu Árni og Reynir skipta á sínum störfum svo sem var hjá síðustu bæjarstjórn þ.e. forseti bæjarstjórnar verður hjá Framsókn og formaður bæjarráðs flyst til Samfylkingarinnar. Ekki er búið að ganga frá ráðningu bæjarstjóra en það verður gert alveg á næstu dögum jafnvel fyrir helgi. Búið er að skipta niður nefndum og ráðum þar sem húsnæðisnefnd, félagsmálaráð, æskulýðs og tómstundaráð, bygginga og skipulagsnefnd ásamt heilbrigðis og öldrunarráði verða hjá Samfylkingunni. Hjá Framsókn verða menningarmál, hafnarstjórn, skólanefnd,  og umhverfisnefnd, síðan verður skipting á öldrunarráði og menningarráði á miðju kjörtímabili.</description>
Nýtt fyrirtæki á Hornafirði
      <description>Þann 27. apríl síðastliðinn stofnuðu þær Rannveig Einarsdóttir og Elín S. Harðardóttir fyrirtæki sem ber nafnið Náttúrulega ehf. Fyrirtækið sérhæfir sig í hönnun fræðsluskilta, bæklinga og korta.  Skipulagi ferðamannastaða og útivistarsvæða,  ásamt öðrum umhverfisverkefnum. Þær Rannveig og Elín  hafa starfað um árabil á sviði umhverfismála og hafa aflað sér víðtækrar  þekkingar og reynslu í því starfi. Á svæði sem Austur- Skaftafellssýslu, sem er í stöðugri sókn í ferðaþjónustu, eykst sífellt þörfin fyrir að koma fræðslu um menningu, sögu og náttúrufar til skila. Sífellt fleiri ferðamenn ferðast á eigin vegum, skiptir þá miklu máli að þeir geti aflað sér upplýsinga um viðkomandi svæði á aðgengilegan hátt. Slík vinna nýtist einnig heimamönnum til útivistar og kennslu.</description>
Útskrift við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu
      <description>Laugardaginn 20. maí fór fram útskrift við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.  Af almennri braut luku 8 námi.  Einn útskrifaðist af sjúkraliðabraut og 16 með stúdentspróf.  Þetta er í 15. skipti sem stúdentar útskrifast frá FAS og er hópurinn núna sá fjölmennasti.  Fimm luku nám á þremur árum og þar á meðal dúxinn Sveinn Rúnar Ragnarsson.  Tveir tóku viðbótarnám til stúdentsprófs og þar af annar í fjarnámi.  Einn nýstúdentinn er japanskur og er sennilega sá fyrsti sem útskrifast með stúdentspróf úr íslenskum framhaldsskóla.</description>
Tekur við sem svæðisstjóri fjarskiptanets Símans á Austurlandi
      <description>Björn Ingi Jónsson hefur verið ráðinn sem svæðisstjóri fjarskiptanets Símans á Austurlands sem er nýtt starf sem búið var til í tengslum við skipulagsbreytingar á starfsemi grunnets símans. Starfssvæðið er allt Austurland en starfsstöð Björns Inga verður á Höfn. Eftir skipulagsbreytingarnar eru allir tæknimenn fjarskiptanets Símans á Austurlandi undir stjórn svæðisstjóra. Björn Ingi er rafeindavirkjameistari að mennt og hefur starfað hjá Hátíðni síðustu átta ár þar áður var hann starfsmaður Símans. Hann eins og margir aðrir sem búa í hinum dreifðu byggðum landsins nýtir sér fjarskiptatæknina til fjarnáms en hann hefur stundað nám við Háskólann í Reykjavík í rafmagnsiðnfræði.</description>
      <alt>Björn Ingi Jónsson</alt>
Snjóflóð féll á ferðamenn á Hvannadalshnjúki
      <description>Neyðarkall barst í dag klukkan 12:30 frá fimm mönnum, sem höfðu lent í snjóflóði í suðurhlíðum Hvannadalshnjúks. Munu mennirnir hafa runnið um 300 metra með flóðinu. Að sögn stjórnstöðvar Björgunarmiðstöðvarinnar í Reykjavík sluppu mennirnir allir úr flóðinu og eru þrír eitthvað meiddir en tveir ómeiddir. Þeir þurfa aðstoð við að komast til byggða. Veður er sagt vera ágætt á vettvangi, heiðskýrt og hægur vindur. Búið er að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar og er áætlað að hún komi á staðinn klukkan 14:34. Einnig hafa björgunarsveitir Landsbjargar verið kallaðir út og eru björgunarsveitamenn á leið á vettvang í snjóbílum og á vélsleðum.</description>
Fóru í sína árlegu eggjatökuferð í Ingólfshöfða
      <description>Nokkrir Öræfingar fóru í sína árlegu eggjatökuferð í Ingólfshöfða á dögunum.Við fórum heldur með fyrra móti núna svo að fuglinn var ekki alveg orpinn, fengum um 1100 egg sem er nokkru minna en verið hefur sagði Ragnar Frank í Skaftafelli sem var einn leiðangursmanna. Að venju sáu þeir Ari frá Hofi og Jóhann í Svínafelli um að síga í bjargið eftir eggjunum en í það hlutverk er ekki hver sem er gjaldgengur og algjört skilyrði er að sigmaðurinn sé innan við 80 kg.. Ragnar sagði að eggin væru borðuð með bestu list enda hollur herramannsmatur og enginn hafði minnstu áhyggjur vegna fuglaflensu, enda búið er að aflétta hættustigi vegna hennar.</description>
Framsókn og Samfylkingin skrifa undir viljayfirlýsingu um meirihlutaviðræður
      <description>Framsóknarmenn og Samfylkingin á Hornafirði hittust í gær til að ræða myndun meirihluta í Sveitarfélaginu Hornafirði. Skrifað var undir viljayfirlýsingu um meirihlutaviðræðurnar en í henni kemur fram að ekki verði rætt við aðra á meðan viðræður standa yfir. Áframhaldandi fundur verður haldinn í dag og ekki ólíklegt að kominn verði nýr meirihluti hér í sveitarfélaginu í dagslok. Að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar oddvita Samfylkingarinnar þá er ekki enn farið að ræða hvernig verður tekið á  ráðningu bæjarstjóra. Albert Eymundsson hætti sem bæjarstjóri í síðustu viku og var hans síðasti starfsdagur 24. maí s.l. og á meðan ekki er búið að ráða í stöðuna þá gegnir Hjalti Vignisson stöðu bæjarstjóra.</description>
Viðurkenningar fyrir forvarnavinnu
      <description>Í dag var nemendum í 8. bekk í Heppuskóla afhentar viðurkenningar fyrir forvarnavinnu vetrarins. Í forvarnavinnunni voru unnar forvarnastuttmyndir þar sem efnistökin voru  áfegni- tóbak- útivist og eiturlyf. Var nemendum skipt upp í hópa. Sérstök viðurkenning var veitt fyrir besta myndbandið sem Rauði hópurinn fékk en í því myndbandi var fjallaði á áhrifaríkann hátt um þær skelfinlegu afleiðingar sem það getur haft fyrir ungling að ánetjast eiturlyfjum. Fyrr í vetur var foreldrum og nemendum í skólanum boðið á sýningar á myndböndunum. 
|nl|Myndirnar hafa nemendurnir unnið undir verkstjórn Árna Péturs Hilmarssonar kennara í skólanum og Hauks Helga Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúa. Auk þess að gera myndirnar hafa nemendurnir líka skrifað forvarnasögur sem birtust í Eystrahorni. Þá gerðu þeir einnig tillögu að forvarnabæklingum.</description>
Mastrið hefur göngu sína á ný í kvöld á SkjáVarpi
      <description>Hver man ekki eftir Mastursþáttunum sem sýndir voru á Skjávarpi síðasta sumar en þættirnir voru staðbundnir frétta- og afþreyingarþættir þar sem lífið og tilveran í Hornafirði var til umfjöllunar undir stjórn Gunnars Auðuns fréttastjóra, Gísla Arnars, Sindra, Steinars og Sævars. Viti menn, biðin er á enda þeir eru mættir enn á ný með þáttinn, enn betri, ferskari og reynslunni ríkari. Þættirnir munu verða sýndir í sumar á miðvikudagskvöldum kl. 20:00. En í kvöld verður þetta með aðeins öðru sniði, því þá verður kosningaþáttur Mastursins og er hann kl. 20:00.</description>
      <alt>Mastrið</alt>
16 nemendur útskrifuðust sem stúdentar frá FAS
      <description>Í gær fram fór fram útskrift hjá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Aldrei áður hafa jafn margir stúdentar verið útskrifaðir frá skólanum í einu, en að þessu sinni voru það 16 nemendur sem útskrifuðust frá skólanum. Þeir eru Nína Einarsdóttir sem útskrifaðist af sjúkraliðabraut, nýstúdentar Andri Indriðason, Chiharu Kawai, Edda Bjarnadóttir, Einar Smári Þorsteinsson, Elvar Snorrason, Guðrún Einarsdóttir, Ingi Steinn Þorsteinsson, Ingibjörg Ævar Steinsdóttir, Lena Hrönn Marteinsdóttir, María Ingibjörg Úlfarsdóttir, Sara Eik Sigurgeirsdóttir, Sigurður Óskar Jónsson, Sveinn Rúnar Ragnarsson sem jafnframt dúxaði, Valgerður Hanna Úlfarsdóttir, Þorgrímur Tjörvi Halldórsson og Þóra Björg Gísladóttir.</description>
Lopapeysutónleikar í Öræfunum á þriðjudagskvöld
      <description>Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands leggur í næstu viku af stað í söngferð til Orkneyja og Skotlands. Lagt verður af stað með Norrænu, höfð viðkoma í Færeyjum í dagsstund, einnig á Hjaltlandseyjum og þjóðlagahátíð á Orkneyjum heimsótt. Að endingu verður gengið á land á Skotlandi og flogið heim frá Glasgow. Á leiðinni austur ætlar kórinn að gista á Svínafelli í Öræfum, en þaðan kemur einn kórfélagi. Að kvöldi þriðjudagsins 23. maí ætlar kórinn að halda tónleika í skálanum á tjaldstæðinu í Svínafelli. Söngurinn hefst kl. 20:30. Efnisskráin er fjölbreytt, létt og skemmtileg eins og vænta má hjá ungu fólki í sumarbyrjun. Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög vel þegin. Allir eru velkomnir að njóta kórtónlistar á björtu vorkvöldi.</description>
      <alt>Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands</alt>
Kexganga
      <description>Fimmtudagskvöldið 11. maí fór vaskur hópur manna og kvenna í kvöldgöngu með Ferðafélagi Austur-Skaftafellssýslu. Ekið var austur að Syðra-Firði og gengið þaðan upp Kastárdal og síðan yfir Kex. Þegar komið var upp á Kexið blasti Stokksnesið við baðað í kvöldsól. Gangan tók um 3 tíma og voru þátttakendur sammála um það hve hressandi það væri að fara svona út undir bert loft reyna aðeins á sig.</description>
10 milljóna króna styrkur frá Alcoa til Þjóðgarðsins í Skaftafelli
      <description>Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra tók í gær við 20 milljóna króna styrk úr hendi Bernt Reitans varaframkvæmdastjóra Alcoa. Styrkurinn er ætlaður til uppbyggingar þjóðgarða í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum. Helmingur þessara upphæðar, 10 m.kr. fer til Þjóðgarðsins í Skaftafelli og verður þeim varið til framkvæmda við Lakagíga segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Unnið verður að skipulagningu svæðisins, vega-og stígagerð og til að koma upp salernum þar uppfrá en engin hreinlætisaðstaða er þar. Framkvæmdir hefjast í sumar um leið og snjóa leysir og fært verður upp að Lakagígum en það er venjulega ekki fyrr en í lok júní.</description>
Bein útsending frá Nýheimum í dag
      <description>Í dag kl. 17:00 verður bein útsending kosningaþáttar Svæðisútvarpsins á Austurlandi frá Nýheimum og er sent út á dreifikerfi Rásar 2 (RUV). Í þáttinn mæta efstu menn framboðslistanna hér í Sveitarfélaginu þar sem þeir munu svara pólitískum spurningum útvarpsmanna. Yfirskrift þáttarins er "Um hvað snúast sveitastjórnarkosningarnar á Hornafirði". Þetta er fjórði kosningaþáttur Svæðisútvarpsins af sex en þegar hefur verið fjallað um kosningarnar á Vopnafirði, Djúpavogi og Seyðisfirði. Kjósendur sem og aðrir eru velkomnir í Nýheima til að fylgjast með útsendingunni sem fer fram í sal Nýheima.</description>
Jóhanna lék hlutverkið af fullri sannfæringu
      <description>Meðal þeirra mörgu sem þátt tóku í flugslysaæfingunni á Hornafjarðarflugvelli  um helgina sl. var Jóhanna Magnúsdóttir fyrrum starfsmaður í flutningadeild KASK. Jóhanna var í hópi þeirra sem voru í hlutverki slasaðra og lék hún sitt hlutverk sitt svo vel og sannfærandi að hjálparliðum fannst sem þarna væri bláköld alvara á ferðum. Fréttamaður hafði samband við Jóhönnu og bað hana að segja hvernig þetta  gekk fyrir sig.  Ég var auðvitað máluð og lituð sem mikið slösuð og tók auðvitað þátt í hlutverkinu af fullri sannfæringu því til þess eru æfingar að þær séu sem raunverulegastar segir Jóhanna . Ég gargaði svo mikið á meðan verið var að slökkva í ,,flugvélinni´´ að einn slökkviliðsmaðurinn kom hlaupandi til mín til að hugga mig og biðja mig að slappa af, þetta yrði allt í lagi og þegar læknirinn benti á mig sem einn þeirra sem senda átti með flugvél gargaði ég nei,nei, ég fer ekki í flugvél. Ég bara lifði mig inn í hlutverkið og mér fannst gaman af að vera með fólkinu þarna í heilan dag og taka þátt í þessu, ég hef nóg af tíma þar sem ég er mest ein heima öll kvöld svo þetta var góð tilbreyting.</description>
Verkaskipting þeirra sem komu að flugslysaæfingunni var einstaklega góð
      <description>Flugslysaæfingin sem haldin var í dag gekk í heildina mjög vel og samhæfing allra viðbragðsaðila á Hornarfjarðarsvæðinu góð. Þegar margir aðilar vinna saman kemur í ljós hversu samvinna er mikilvæg en samvinna og verkaskipting þeirra sem komu að æfingunni í dag var einstaklega góð og gekk vel. Slökkvistarf og björgunarstarf gekk vel á slysstað, eins og aðhlynning sjúklinga.  Ekki er síður mikilvægt að huga að andlegu hliðinni þegar slys ber að höndum, en sú aðhlynning var einnig æfð í dag.  Allir þessir þættir sem vel gengu segja mikið til um það góða samstarf sem viðbragðsaðilar, jafnt atvinnumenn, áhugamenn og sjálfboðaliðar, hafa unnið og undirbúið á sl. mánuðum. Fjarskiptin gengu ekki sem skildi og helgaðist það m.a. vegna fjarlægðar á milli flugvallarins og Hafnar. Sá þáttur verður skoðaður svo hægt sé að vinna að úrbótum.</description>
Flugslysaæfing á Hornafirði í dag
      <description>ÆFING - ÆFING - ÆFING - ÆFING - ÆFING - ÆFING - ÆFING - ÆFING - ÆFING
|Í dag, laugardaginn kl. 13:10 tilkynnir flugturninn á Hornafirði um flugslys. Dornier D328 vél sem var að koma inn til lendingar á braut 36 virtist, að sögn flugumferðarstjóra, fá á sig skyndilegt niðurstreymi og rekst annar vængur flugvélarinnar í jörðina rétt við brautarendann og brotlendir flugvélin. Við brotlendinguna brotnaði vélin í nokkra hluta sem dreifðust aðallega austan við brautina. Miklir eldar loga í hluta flaksins og farþegar eru fastir inni í flakinu.</description>
Síðasti vinnudagur Alberts sem bæjarstjóra 24. maí
      <description>Á Bæjarstjórnarfundi sem fram fór í gær í Ekru og var síðan sendur út á Skjávarpi kom m.a. fram að síðasti vinnudagur Alberts Eymundssonar sem bæjarstjóra verður 24. maí n.k. Alberti voru færðar þakkir fyrir störf sín og árnaðaróskir. Elín Magnúsdóttir forystumaður  framsóknarmanna færði honum blómvönd og þakkaði sérstaklega fyrir þeirra hönd. Albert sagði m.a. í lokin: "Fyrir sex árum tók ég að mér starf bæjarstjóra Hornafjarðar og var endurráðinn aftur árið 2002 þ.e.  þetta kjörtímabil. Ég sagði á fyrsta fundi mínum að það væru forréttindi fyrir einstakling eins og mig að fá svona tækifæri þar sem hugsjónir mínar hafa alla tíð snúist um að vinna samfélaginu í þessu héraði eitthvert gagn. Það hef ég reynt að gera eftir bestu samvisku og getu en það er annarra að dæma um árangurinn. Niðurstöður sem ég kynnti með ársreikningnum áðan og yfirlit yfir kjörtímabilið ásamt umsögn endurskoðanda sýnir að ég má vera sáttur við viðskilnað minn.</description>
      <alt>Albert Eymundsson</alt>
30 sjúklingar sem verða mismikið lemstraðir eftir flugslysið
      <description>Nú líður að flugslysaæfingunni sem verður haldin inn á flugvelli á laugardag. Þetta er í 17 skiptið sem Flugmálastjórn setur upp æfingu af þessu tagi, hún er ekki sú stærsta sem haldin hefur verið en er sérstök vegna fjarlægða Hornafjarðar til næstu bæja. Á æfingunni á laugardaginn verða u.þ.b. 30 sjúklingar sem verða mismikið "lemstraðir" eftir flugslysið. Svokallaðir ráðgjafar eða starfsmenn á vettvangi verða 32 en það eru aðilar sem koma frá öllum þeim starfseiningum sem vinna að þessari æfingu. Ef taldar eru þær mannstundir sem hafa farið í undirbúning og æfinguna sjálfa má gera ráð fyrir um það bil 1057 klukkustundum. Undirbúningurinn hófst fyrir síðustu áramót. Ef raunverulegt slys ber að höndum á Hornafirði eða á landsvæðinu þar í kring er mjög langt í alla aðstoð og þar sem slys gera ekki boð á undan sér er gott að viðbragðsáætlun sé klár og æfð. Næstu sjúkrahús frá Hornafirði eru langt í burtu eða á Selfossi í vesturátt og Neskaupsstað í austurátt. Næsta heilsugæsla er á Djúpavogi í austurátt og á Kirkjubæjarklaustur í vesturátt. Sem þýðir að næsta hjálp ef slys verður er í 100 km. fjarlægð.</description>
Sumarball á Hótel Höfn um helgina
      <description>Nú um helgina nánar tiltekið á laugardagskvöld verður eftir nokkuð hlé dansleikur á Hótel Höfn en eins og vegfarendur hafa orðir varir við þá hafa verið miklar framkvæmdir þar á bæ. Það verður hornfirska hljómsveitin KUSK sem mun sjá til þess að halda uppi stuðinu á mögnuðum dansleik. Hljómsveitina skipa fimm Hornfirðingar sem allir hafa áralanga reynslu af því að skemmta fólki með söng, hljóðfæraslætti og ýmsum öðrum uppákomum. Á bassa er Bjartmar Ágústsson, Sigurður Mar Halldórsson á gítar, Heiðar Sigurðsson er söngvari og hljómborðsleikari, Kristján Hauksson söngvari og stuðbolti en hann sem gekk til liðs við sveitina í vetur. Á trommum er Ólafur Karl Karlsson og er þetta í síðasta skipti sem hann trommar með sveitinni, a.m.k. í bili þar sem hann er að flytja erlendis. Á dansleiknum verður tilkynnt hver mun taka við af honum. Hljómsveitin hefur gert garðinn frægan hér heima og erlendis og var hún m.a. á þorrablóti Íslendingafélagsins í Stokkhólmi sem haldið var í febrúar s.l. Töluvert er framundan hjá hljómsveitinni á næstu mánuðum en auk þess að spila á böllum víðsvegar um landið er verið að vinna að upptökum á frumsömdu efni sem gæti komið út á plötu í fyllingu tímans.</description>
Matvöru- og byggingavöruverslun á Höfn
      <description>Mikið hefur verið rættu um verslunarmál á Höfn undanfarnar vikur og m.a. hver muni vera framtíð byggingarvöruverslunarinnar einu versluninni sem eftir er af verslunum Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Pálmi Guðmundsson kaupfélagsstjóri segir að verið sé að vinna í þessum málum, við erum búnir að vera í viðræðum við Húsasmiðjuna og við reiknum með að hún taki við starfsemi byggingavöruverslunar á Hornafirði fyrir sumarið en stjórnir félaganna eru ekki búnar að skrifa undir samninginn, þetta er alveg að skella á. Pálmi er viss um að Kaupfélag Héraðsbúa sem á verslunarhúsin Miðbæ og á Vesturbraut, muni standa vel að rekstri matvörubúða  þegar leigutími þeirra við Kaupás rennur út í byrjun næsta árs og að þar sé fyrir hendi metnaður til að gera betur en fyrir var.</description>
Karlakór Reykjavíkur í Hafnarkirkju
      <description>Fimmtudaginn 11. maí n.k. mun Karlakór Reykjavíkur leggja land undir fót og heimsækja Höfn.  Kórinn mun halda tónleika í Hafnarkirkju kl. 20.00 þann dag.  Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson og mun Guðlaug Hestnes leika undir á píanó í nokkrum lögum. Daginn eftir heldur kórinn för sinni áfram og mun koma fram víðs vegar í Fjarðabyggð og á Egilsstöðum.  Laugardaginn 13. maí verða síðan tónleikar í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði og hefjast þeir kl. 16.00.  Þar munu þær Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran (Diddú) og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari koma fram með kórnum.</description>
      <alt>Karlakór Reykjavíkur</alt>
Ef sýnin reynist neikvæð verður viðbúnaðarstigi tvö vegna fuglaflensu aflétt
      <description>Starfsmenn Fuglaathugunarstöðvarinnar á Hornafirði, Björn Arnarson og Brynjúlfur Brynjólfsson fóru í Óslandið í morgun og tóku 20 sýni frá kríunum og frá urtöndum og stokköndum voru tekin 8 sýni vegna fuglaflensu. Sýni eru núna tekin víðsvegar um landið og reynist þau neikvæð verður viðbúnaðarstigi tvö vegna fuglaflensu aflétt. Nánast allir farfuglar eru komnir til landsins og Óðinshaninn, sá sem venjulega er síðastur farfugla, er að detta hér inn síðustu dagana. Fjölbreytt fuglalíf er í Óslandi og telur Björn að þar verpi um 15 tegundir fugla. Um helmingur þeirra fugla sem hér eru, eru byrjaðir að verpa og daglega bætast fleiri í þann hóp. Áður fyrr biðu margir þess að ná sér í egg áður en þau yrðu unguð og þótti það búbót hin besta en nú er öldin önnur og minna sótt í eggin og sagði Björn að eggjataka hefði verið áberandi minni í fyrra en áður og á hann von á að svo verði einnig í sumar, líklega mjög lítil.</description>
Eitt af forgangsmálum að gera veginn um Öxi að heilsársvegi
      <description>Vegagerðin hefur í vetur skoðað aðstæður fyrir jarðgöng í Lónsheiði og breytingar á veginum um Öxi. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir þetta vera svona frumskoðun en engin ákvörðun komin, allavega er þetta þó byrjunin. Gerð var úttekt á veginum um Öxi og ljóst að þar virðist hægt að gera brattalítinn heilsársveg  þar sem mesti halli yrði 7-8 gráður en er nú 15-16° þar sem brattast er. Nýr vegur yrði því álíka brattur og vegurinn um Fagradal. Nýr vegur verður á svipuðum slóðum og hvergi vandamál með breytinguna fyrr en með veginn niður í Berufjörð en hann yrði lagður á  svipuðum slóðum og vegurinn er núna. Í sumar eru settar 15 millj.kr til vegagerðar um Öxi. Stytting á veginum með þessum fyrirhuguðu breytingum verður 2-3 km en miklu fljótfarnari. Leiðin um Öxi frá Djúpavogi til Egilsstaða er rúmum 60 km. styttri en ef farið er um Breiðdalsheiði og rúmlega 70 km. styttri en leiðin um Fáskrúðsfjarðargöng og ætti því að vera eitt af forgangsmálum í vegagerð að koma þarna upp heilsársvegi .</description>
Sérkennilegt og fallegt sólsetur yfir jökli síðustu daga
      <description>Hornfirðingar hafa orðir varir við mjög sérkennilegt og fallegt sólsetur síðustu tvo daga. Dumbrauður litur hefur verið í kringum sólina og hún skemmtilega rauðgul. Skýringuna má rekja til þurramisturs sem eru örsmáar agnir í loftinu sem gera þessar litabreytingar. Samkvæmt samtali mbl.is við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing hjá Veðurstofunni þá segir hann þetta loft koma frá Suður-Póllandi því þeir eigi eftir að taka til í sínum umhverfismálum og hætta að brenna brúnkolum eins og Bretar gerðu í kringum 1980,”. Agnirnar eiga ættir sínar að rekja til iðnaðarmengunar en eiga ekkert skylt við svifryk sem er heimatilbúin mengun. Þurramistur samanstendur af ögnum af smæstu gerð og þegar sólin er lágt á lofti og geislar hennar þurfa að fara um langan veg í gegnum andrúmsloftið, þá síast út aðrir litir en rauður og bleikur því hinar smáu agnir dreifa öðru sólarljósi og virka eins og sía. „Þetta fyrirbæri gæti vel sést aftur í kvöld því það er mikið mistur yfir landinu,” sagði Einar að lokum við mbl.is. Hann þvertók fyrir að þetta loft gæti verið hættulegt, því það væri yfir Evrópulöndunum meira og minna allan ársins hring.</description>
Fuglalífið hér er í góðum málum og rólegt
      <description>Fuglalífið hér er í góðum málum og rólegt sagði Björn Arnarson fuglaáhugamaður á Höfn þegar hann var spurður um hvort mikið finnist hér af dauðum fuglum.Hér hefur minna fundist af dauðum fuglum en vanalegt er um þetta leiti árs og sama er að segja um aðra staði á landinu, núna er bara miklu meira tilkynnt um þá sem finnast. Fyrir nokkrum dögum voru tekin hér 64 sýni frá ýmsum fuglategundum og send utan til rannsóknar vegna fuglaflensu og reyndust þau öll neikvæð. Sýnin voru tekin úr heiðar-og grágæsum, álftum, hrossagauk, heiðlóu, jaðrakan og stelk. Fleiri sýni verða send á næstunni. Björn segir að í vor og það sem af er sumri hafi lítið verið um komur flækingsfugla, það sé með allra minnsta móti en það gæti breyst næstu daga því spáð er austan átt.</description>
Sjálfboðaliða bráðvantar í hlutverk slasaðra
      <description>Vegna undirbúnings fyrir flugslysaæfingu á Hornafirði laugardaginn 13.maí verður röskun á starfsemi heilsugæslunnar dagana 11-13 maí þar sem allt tiltækt starfslið heilsugæslunnar vinnur að undirbúningi æfingarinnar svo sem mögulegt er. Ef nauðsynlega þarf að ná í lækni laugardaginn 13.maí milli kl 12.00-16.00, skal hafa samband við neyðarlínuna og mun hún koma boðum til vakthafandi læknis. Enn vantar fólk til að taka þátt í flugslysaæfingunni og engin virk æfing verður án þátttakenda. Til að svona æfing beri tilætlaðan árangur þurfum við hjálp heimamanna sagði Einar Sigurjónsson lögreglumaður, og við yrðum afskaplega þakklát öllum þeim sem mögulega geta lagt okkur lið við að gera æfinguna sem virkasta og að við náum sem bestri þjálfun því enn bráðvantar okkur a.m..k. 20 manns frá 14 ára aldri, konur og karla, til að leika slasaða.</description>
Mikilvægt að sveitarstjórnarmenn taki enn meira tillit til félagsmanna
      <description>Á fjölmennum aðalfundi Félags opinbera starfsmanna á Suðurlandi (FOSS) sem haldinn var á Hótel Selfossi í gærkvöldi var m.a. samþykkt áliktun þar sem félagsmenn skora á bæjar- og sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi að koma meira að kjarasamningagerð við félagið í stað þess að fela Launanefnd sveitarfélaga fullnaðarumboð. Dæmin hafa sannað að þar sem sveitarstjórnamenn koma að samningaferlinu við bæjarstarfsmannafélögin hefur tekist betri sátt um launkjör starfsmanna, þar sem meiri þekking er á aðstæðum. Kjarasamningur milli Starfsmannafélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar er gott dæmi um þetta. Félagsmenn FOSS hér í Sveitarfélaginu Hornafirði eru um 40 talsins og er einn stjórnarmaður héðan, Torfi Friðfinnsson hafsögumaður hjá Hornafjarðarhöfn.</description>
      <alt>Torfi Friðfinnsson</alt>
Flugfar frá Höfn til Reykjavíkur á 70 krónur
      <description>Í tilefni að opnun á nýjum bókunarvef fyrir flug býður Landsflug ásamt Flugfélagi Íslands takmörkuð sæti á sérstöku opnunar-tilboðsverði sem aðeins er hægt að bóka á netinu í dag og var einnig hægt í gær. Tilboðsverðið á aðeins við ef flogið er tímabilið 8. til 14 maí. Verðið er 70 krónur aðra leiðina (1000 kr. með flugvallarskatti). Rétt er að taka fram að hér er um að ræða 500 miða á flugleiðum Landsflugs og Flugfélags Íslands  og gildir reglan góða fyrstir koma fyrstir fá. Samkvæmt samtali við Sigurbjörn Daða Dagbjartsson sölu og markaðsstjóra hjá Landsflugi þá hefur verið mikil ásókn í þetta opnunartilboð. Hann segir að Landsflug líti björtum augum á sumarið enda mikil aukning á farþegum til og frá Höfn í sumar sem eru að mestu leiti erlendir ferðamenn.</description>