Hjalti Þór ráðinn sem nýr bæjarstjóri
Nýr meirihluti hefur ákveðið að ráða Hjalta Þór Vignisson sem nýjan bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Gengið verður frá ráðningu hans á næstu dögum en búið að handsala ráðninguna og mun hann taka við starfi bæjarstjóra um leið og ný bæjarstjórn tekur til starfa sem er um miðjan júní. Að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar forseta bæjarstjórnar þá var einhugur meirihlutans að ráða Hjalta í starfið og vilji að nýta það fólk sem hér er á staðnum. Árni vonaðist til þess að sátt væri um þessa ákvörðun innan Sveitarfélagsins og var hann viss um að ráðning Hjalta Þórs yrði sveitarfélaginu til heilla.
Hjalti Þór hefur gengt embætti forstöðumanns Menningarmiðstöðvar og hefur hann einnig verið aðstoðarmaður bæjarstjóra.





Skrifa athugasemd