Maí
Bæjarstjórn_Meirihluti_2006
Bæjarstjórn_Meirihluti_2006
Nýmyndaður meirihluti Bæjarstjórnar Hornafjarðar, frá vinstri Reynir Arnarsson, Sigurlaug Gussurardóttir og Elín Magnúsdóttir frá Framsóknarflokki, Guðrún Ingimundardóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson frá Samfylkingunni.

31.05.2006 Maí

Nýr meirihluti í Bæjarstjórn Hornafjarðar

Ný bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjöður tók til starfa um hádegi í dag. Framsókn og Samfylkingin hafa undirritað samstarfssamning þar sem Árni Rúnar Þorvaldsson Samfylkingunni verður forseti bæjarstjórnar og Reynir Arnarson Framsókn verður formaður bæjarráðs. Þegar kjörtímabil er hálfnað munu Árni og Reynir skipta á sínum störfum svo sem var hjá síðustu bæjarstjórn þ.e. forseti bæjarstjórnar verður hjá Framsókn og formaður bæjarráðs flyst til Samfylkingarinnar. Ekki er búið að ganga frá ráðningu bæjarstjóra en það verður gert alveg á næstu dögum jafnvel fyrir helgi. Búið er að skipta niður nefndum og ráðum þar sem húsnæðisnefnd, félagsmálaráð, æskulýðs og tómstundaráð, bygginga og skipulagsnefnd ásamt heilbrigðis og öldrunarráði verða hjá Samfylkingunni. Hjá Framsókn verða menningarmál, hafnarstjórn, skólanefnd, og umhverfisnefnd, síðan verður skipting á öldrunarráði og menningarráði á miðju kjörtímabili.

Í nýrri bæjarstjórn eru frá Framsókn, Reynir Arnarsson, Elín Magnúsdóttir og Sigurlaug Gissurardóttir, frá Samfylkingunni Árni Rúnar Þorvaldsson og Guðrún Ingimundardóttir. Frá Sjálfstæðismönnum eru Halldóra Bergljót Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica