Nýtt fyrirtæki á Hornafirði
Þann 27. apríl síðastliðinn stofnuðu þær Rannveig Einarsdóttir og Elín S. Harðardóttir fyrirtæki sem ber nafnið Náttúrulega ehf. Fyrirtækið sérhæfir sig í hönnun fræðsluskilta, bæklinga og korta. Skipulagi ferðamannastaða og útivistarsvæða, ásamt öðrum umhverfisverkefnum. Þær Rannveig og Elín hafa starfað um árabil á sviði umhverfismála og hafa aflað sér víðtækrar þekkingar og reynslu í því starfi. Á svæði sem Austur- Skaftafellssýslu, sem er í stöðugri sókn í ferðaþjónustu, eykst sífellt þörfin fyrir að koma fræðslu um menningu, sögu og náttúrufar til skila. Sífellt fleiri ferðamenn ferðast á eigin vegum, skiptir þá miklu máli að þeir geti aflað sér upplýsinga um viðkomandi svæði á aðgengilegan hátt. Slík vinna nýtist einnig heimamönnum til útivistar og kennslu.
Hið nýstofnaða fyrirtæki hefur aðsetur í Frumkvöðlasetri Austurlands ehf. í Nýheimum á Höfn. Það er ómetanlegt fyrir sprotafyrirtæki sem er að koma undir sig fótunum að hafa slíka aðstöðu og vinnuumhverfi. Hægt er að skoða verkefni fyrirtækisins á heimasíðu þess, sem er: www.natturulega.is





Skrifa athugasemd