Maí
FAS_utskrift_IMG_2376
FAS_utskrift_IMG_2376
Útskriftarhópur FAS 2006

31.05.2006 Maí

Útskrift við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu

Laugardaginn 20. maí fór fram útskrift við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu. Af almennri braut luku 8 námi. Einn útskrifaðist af sjúkraliðabraut og 16 með stúdentspróf. Þetta er í 15. skipti sem stúdentar útskrifast frá FAS og er hópurinn núna sá fjölmennasti. Fimm luku nám á þremur árum og þar á meðal dúxinn Sveinn Rúnar Ragnarsson. Tveir tóku viðbótarnám til stúdentsprófs og þar af annar í fjarnámi. Einn nýstúdentinn er japanskur og er sennilega sá fyrsti sem útskrifast með stúdentspróf úr íslenskum framhaldsskóla.

Á meðfylgjandi mynd eru útskriftarnemendur af sjúkraliðabraut og stúdentsbrautum. Talið frá vistir í efri röð: Einar Smári Þorsteinsson, Ingi Steinn Þorsteinsson, Sveinn Rúnar Ragnarsson, Þorgrímur Tjörvi Halldórsson, Andri Indriðason, Elvar Snorrason, Sigurður Óskar Jónsson, Valgerður Hanna Úlfarsdóttir, María Ingibjörg Úlfarsdóttir, Chiharu Kawai og Nína Einarsdóttir. Í fremri röð frá vinstri eru: Ingibjörg Ævar Steinsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Edda Bjarnadóttir, Þóra Björg Gísladóttir, Sara Eik Sigurgeirsdóttir og Lena Hrönn Marteinsdóttir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica