Tekur við sem svæðisstjóri fjarskiptanets Símans á Austurlandi
Björn Ingi Jónsson hefur verið ráðinn sem svæðisstjóri fjarskiptanets Símans á Austurlands sem er nýtt starf sem búið var til í tengslum við skipulagsbreytingar á starfsemi grunnets símans. Starfssvæðið er allt Austurland. Eftir skipulagsbreytingarnar eru allir tæknimenn fjarskiptanets Símans á Austurlandi undir stjórn svæðisstjóra. Björn Ingi er rafeindavirkjameistari að mennt og hefur starfað hjá Hátíðni síðustu átta ár þar áður var hann starfsmaður Símans. Hann eins og margir aðrir sem búa í hinum dreifðu byggðum landsins nýtir sér fjarskiptatæknina til fjarnáms en hann hefur stundað nám við Háskólann í Reykjavík í rafmagnsiðnfræði.
Starf Björns Inga er annað starfsgildi sem Síminn setur á laggirnar hér í Sveitarfélaginu en hitt starfið er sérfræðistarf upplýsingatæknideildar Símans og er það í höndum Ragnheiðar Sigjónsdóttir.





Skrifa athugasemd