Snjóflóð féll á ferðamenn á Hvannadalshnjúki
Neyðarkall barst í dag klukkan 12:30 frá fimm mönnum, sem höfðu lent í snjóflóði í suðurhlíðum Hvannadalshnjúks. Munu mennirnir hafa runnið um 300 metra með flóðinu. Að sögn stjórnstöðvar Björgunarmiðstöðvarinnar í Reykjavík sluppu mennirnir allir úr flóðinu og eru þrír eitthvað meiddir en tveir ómeiddir. Þeir þurfa aðstoð við að komast til byggða. Veður er sagt vera ágætt á vettvangi, heiðskýrt og hægur vindur. Búið er að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar og er áætlað að hún komi á staðinn klukkan 14:34. Einnig hafa björgunarsveitir Landsbjargar verið kallaðir út og eru björgunarsveitamenn á leið á vettvang í snjóbílum og á vélsleðum.
Björgunarmiðstöð í Skógarhlíð hefur verið mönnuð meðan á verkefninu stendur.





Skrifa athugasemd