Maí
Eggjatökuferð í Ingólfshöfða maí 2004 ©RF
Eggjatökuferð í Ingólfshöfða maí 2004 ©RF
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

30.05.2006 Maí

Fóru í sína árlegu eggjatökuferð í Ingólfshöfða

Nokkrir Öræfingar fóru í sína árlegu eggjatökuferð í Ingólfshöfða á dögunum.Við fórum heldur með fyrra móti núna svo að fuglinn var ekki alveg orpinn, fengum um 1100 egg sem er nokkru minna en verið hefur sagði Ragnar Frank í Skaftafelli sem var einn leiðangursmanna. Að venju sáu þeir Ari frá Hofi og Jóhann í Svínafelli um að síga í bjargið eftir eggjunum en í það hlutverk er ekki hver sem er gjaldgengur og algjört skilyrði er að sigmaðurinn sé innan við 80 kg.. Ragnar sagði að eggin væru borðuð með bestu list enda hollur herramannsmatur og enginn hafði minnstu áhyggjur vegna fuglaflensu, enda búið er að aflétta hættustigi vegna hennar.

Sigurður í Hofsnesi og fjölskylda hans eru með fastar ferðir út í Ingólfshöfða frá 24.apríl til 28.ágúst og er farið kl. 11.00 alla daga. Hundruð sjófugla heldur sig í höfðanum og er mest af lunda og skúm.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica